Innlent

Von á tillögu frá ríkinu í deilunum við BHM

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Páll Halldórsson segist ekki vita við hverju eigi að búast frá ríkinu.
Páll Halldórsson segist ekki vita við hverju eigi að búast frá ríkinu. Vísir/Ernir
Samninganefndir Bandalags háskólamanna og ríkisins koma saman til fundar hjá Ríkissáttasemjara klukkan 15 í dag. Þar er gert ráð fyrir að ríkið komi fram með nýjar tillögur um lausn á deilunni.



Páll Halldórsson, formaður samninganefndar BHM, segist ekki vita hverju hann eigi að búast við frá samninganefnd ríkisins á fundinum. síðasta fundi hafi verið slitið og ákveðið að ekki yrði boðað til annars fundar nema að ríkið hefði eitthvað nýtt fram að færa.



„Hingað til hefur ekkert verið að gerast í þessum viðræðum sem hefur hjálpað okkur að leysa málið. Auðvitað fer maður alltaf með þá von að nýr fundur færi okkur nær lausninni en meira get ég í sjálfu sér ekki sagt um það. Þegar við fórum af síðasta fundi þá lá það fyrir til næsta fundar yrði boðað ef ríkið hefði eitthvað fram að færa og nú sjáum við bara hvað það er,“ segir hann.



Fundurinn fer fram í húsakynnum ríkissáttasemjara klukkan þrjú í dag. Páll segist ekki vita hvers eðlis útspil ríkisins er; hvort það sé tilboð eða ekki. Kjaradeilur á milli félagsmanna BHM og ríkisins hafa staðið um nokkurt skeið en verkfallsaðgerðir hafa nú staðið í sjö vikur.



„Ég veit ekki hvað á að kalla það, hvort það er tilboð eða einhverjar hugmyndir en alla vega þegar við fórum af síðasta fundi var þannig gengið frá borið að við myndum setjast aftur þegar ríkið hefði eitthvað nýtt inn í þetta að leggja,“ segir hann.



Fleiri fundir hafa verið boðaðir í kjaradeilum hjá ríkissáttasemjara í dag en sex félög iðnaðarmanna hefja fund með Samtökum atvinnulífsins klukkan hálf tvö. Í morgun var svo fundur verkalýðsfélaga með fulltrúum ÍSAL.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×