Innlent

Von á næturfrosti

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Búast má við næturfrosti næstu nótt á þeim stöðum þar sem vindur er hægur og léttskýjað á himni.
Búast má við næturfrosti næstu nótt á þeim stöðum þar sem vindur er hægur og léttskýjað á himni. Vísir/Vilhelm
„Eftir stórrigningar og stífan vind í vikunni, er nú allt fallið í ljúfa löð í veðrinu á Íslandi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Von er á næturfrosti víða um land.

Í dag verður hægur vindur á landinu og víða sólríkt á Norður- og Norðausturlandi, en annars staðar er búist við að ský hylji himininn að mestu, þó ekki sé gert ráð fyrir úrkomu að neinu ráði úr þeim skýjum. Reikna má með fimm til tíu stiga hita.

„Í hægum vindi og skýlausu veðri að hausti lætur næturfrostið yfirleitt á sér kræla. Þannig var málum háttað á Norðausturlandi í nótt og sem dæmi má nefna að það mældist 3.7 stiga frost á Staðarhóli í Aðaldal og 2.8 stiga frost á Torfum í Eyjafirði og Möðruvöllum í Hörgárdal. Búast má við næturfrosti næstu nótt á þeim stöðum þar sem vindur er hægur og léttskýjað á himni,“ segir í hugleiðingunum.

Á morgun tekur við fremur hæg austanátt, en aðeins blæs með suðurströndinni, kringum 10 m/s. Úrkomusvæði nálgast landið úr austri á morgun og úr því verða regndropar viðloðandi austan- og sunnanlands.

Norðan- og vestantil á landinu ætti að hanga þurrt en í byrjun næstu viku er áfram gert ráð fyrir tiltölulega rólegum vindi og úrkomulitlu veðri, mesta lagi skúrir á víð og dreif.

Samkvæmt nýjustu spám er síðan gert ráð fyrir að hann fari aftur í stífa sunnanátt frá og með miðvikudegi með vætu sunnan- og vestanlands. Í hlýrri sunnanáttinni fer hitinn yfir 10 stigin, einkum í hnjúkaþey á Norður- og Austurlandi.

Veðurhorfur á landinu

Hægviðri, skýjað með köflum og þurrt að kalla, en bjart á Norðurlandi.

Austlæg átt 3-8 á morgun, en 8-13 með suðurströndinni. Dálítil væta austan- og sunnanlands, en þurrt að mestu annars staðar á landinu. Hiti víða 5 til 10 stig yfir daginn.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á sunnudag:

Austlæg átt 3-10 m/s og dálítil rigning með köflum sunnan- og austantil, en þurrt norðan- og vestanlands. Hiti 3 til 8 stig.

Á mánudag:

Hæg austlæg eða breytileg átt og skúrir, en þurrt að kalla fyrir norðan. Hiti 4 til 9 stig yfir daginn.

Á þriðjudag:

Suðvestan 5-10 um landið vestanvert og lítilsháttar væta. Hægari austantil og bjartviðri. Hiti 3 til 8 stig.

Á miðvikudag:

Gengur í stífa sunnanátt með súld eða rigningu, en þurrt á Norður- og Austurlandi. Hlýnandi veður, hiti 7 til 14 stig síðdegis, hlýjast fyrir norðan.

Á fimmtudag og föstudag:

Útlit fyrir ákveðna suðlæga átt með vætusömu veðri sunnan- og vestanlands. Hiti 6 til 12 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×