Bílar

Volt sló við Leaf í sölu í Bandaríkjunum

Finnur Thorlacius skrifar
Chevrolet Volt og Nissan Leaf.
Chevrolet Volt og Nissan Leaf.
Chevrolet Volt seldist betur en Nissan Leaf í júlí í Bandaríkjunum í fyrsta skipti síðan í október árið 2013. Allar götur síðan þá hefur Nissan Leaf selst í meira magni en Volt þar vestra.

Kemur þetta á óvart þar sem Chevrolet Volt af núverandi kynslóð er farinn að eldast og von er á nýrri kynslóð bílsins mjög fljótlega. Alls seldust 1.313 Volt í júlí en 1.174 Leaf og minnkaði sala Volt um 35% á milli ára en sala Leaf minnkaði um 61,1%.

Sala Chevrolet Volt á þessu ári nemur samtals 80.292 bílum en Nissan Leaf hefur selst í 83.312 eintökum og hefur því enn vinninginn. Er þetta til vitnis um dræma sölu tvíorkubíla í Bandaríkjunum sökum lækkandi olíuverðs. Stutt er í nýjan Volt en einnig nýjan Leaf og gæti sala þeirra beggja farið verulega uppávið þegar þeir koma á markað. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×