Íslenski boltinn

Völsungur og Reynir í þriðju deild

Anton Ingi Leifsson skrifar
Gunnar Sigurður og félagar leika í þriðju deild á næsta ári.
Gunnar Sigurður og félagar leika í þriðju deild á næsta ári.
Völsungur og Reynir úr Sandgerði féllu úr annari deild í dag og leika því í þriðju deild á næsta ári, en síðasta umferð deildarinnar fór í dag.

Völsungur vann Sindra á Hornafirði en það dugði ekki í dag því Afturelding og Njarðvík náðu bæði í stig.

Reynismenn hefðu þurft sigur gegn toppliði Fjarðabyggðar til að komast upp úr fallsæti, en náðu einungis jafntefli.

Öll úrslit dagsins:

Afturelding - Ægir 0-0

Huginn - Njarðvík 2-4

KF - Grótta 3-4

Sindri - Völsungur 1-3

Reynir Sandgerði - Fjarðabyggð 2-2

ÍR - Dalvík/Reynir 1-0




Fleiri fréttir

Sjá meira


×