Bíó og sjónvarp

Völdu það besta úr 445 þáttum af Sjálfstæðu fólki

Á sunnudaginn 31. maí verður sérstakur tæplega klukkustundar langur þáttur af Sjálfstæðu fólki sýndur á Stöð 2.

Farið er yfir 14 ára sögu þessa vinsæla þáttar, sem hlotið hefur fleiri verðlaun en flestir aðrir þættir í íslensku sjónvarpi.

Í þættinum er brugðið upp mörgum ógleymanlegum brotum úr langri og litríkri sögu sem nú eru eru hluti af Íslandssögunni.

Þeir Steingrímur og Jón Ársæll hafa valið úr 445 þáttum á fjórtán ára ferli þáttarins brot af því allra besta en alla þættina tæki rúma tíu sólarhringa að sýna væru þeir sýndir í einni lotu.

Það verður því gríðarlega fjölbreyttur og skemmtilegur þáttur sem spannar fjórtán ár af Sjálfstæðu fólki á Stöð 2 á sunnudagskvöld.

Hér fyrir neðan má sjá stórt myndasafn sem sett var inn á Facebook-síðu þáttarins fyrr í dag.

Smá brot úr 445 heimildarmyndum

Posted by Sjálfstætt fólk on Friday, May 29, 2015





Fleiri fréttir

Sjá meira


×