Vöggugjöf

Fréttablaðið Fastir pennar 02. febrúar 2012 06:00
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir.
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir.
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir skrifar:
Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdráttarlaust fram í lesskimun í 2. bekk grunnskóla og er ekki nýr af nálinni. Kennarar vita þetta vel og misræmið kemur glöggt fram í alþjóðlegum greiningum. Í greiningu starfshóps borgarinnar um stráka og námsárangur kemur fram að einn sterkasti forspárþátturinn fyrir árangri í íslensku hjá bæði hjá stúlkum og drengjum er ánægja af lestri.


Ánægja af lestri
Ánægja af lestri er því lykilþáttur sem þarf að hafa í huga þegar við ræðum allt of hátt hlutfall ungmenna sem les sér ekki til gagns. Margir hafa nefnt að rafrænar bækur gætu vakið upp meiri ánægju og áhuga og leyst af hendi „drepleiðinlegar" námsbækur sem oft og tíðum eru úreltar. Aðrir benda réttilega á fjársvelti og að námsbókagerð megi ekki verða fyrir niðurskurði, þvert á móti þurfi að tryggja að áhugasamir og frjóir höfundar semji efni sem dragi fram staðreyndir með fallegum texta og myndum til að vekja áhuga.

Í þessu ljósi þarf að benda á að ánægja af lestri var sterklega tengd árangri í rafrænu lestrarprófi PISA, þ.e. nemendur sem hafa aðgang að fjölbreyttu lesefni stóðu sig betur í rafrænum lestri og að þeir sem lesa mikið af rafrænu efni lesa einnig mikið af hefðbundnu efni. Niðurstöður benda þannig til þess að þeir sem lesa á annað borð styrkja sig með aðkomu aukinnar tækni og fjölbreytileika, en ekki endilega öfugt.


Lesum - strax við vögguna
Börn, strax frá fæðingu, elska bækur, sögur, vísur og rím. Lestur gefur börnum kost á nærveru við þá sem lesa, þau heyra hljóð sem heilinn er forritaður til að nema, þau sjá myndir, tölur, stafi og form og kynnast eigin tilfinningum í gegnum lesefnið. Fljótlega, nokkurra mánaða gömul, hlakka þau til að setjast niður t.d. fyrir svefntíma og sýna eftirvæntingu með hljóðum og hreyfingum. Að naga bókina eftir lestur og reyna að snúa henni við og jafnvel rífa er hluti af ánægjunni. Ánægjan fer ekki fram hjá neinum og þetta eru fyrstu skrefin í lestrarkennslu.

Ef lestur og samskipti með orðum eru regluleg er líklegt að barnið, um eins árs gamalt, sé búið að læra öll þau hljóð sem það þarf að kunna til að tala íslensku. Fáir vaxa upp úr því að vilja hlusta á sögur, ljúka góðri bók, hlusta á góða sögu í útvarpi eða heyra lítinn leikþátt. Því eiga engin viðmið að vera um aldurstakmörk, við eigum að lesa upphátt fyrir börn á öllum aldri og sérstaklega þau sem eiga við leserfiðleika að stríða.


Lesa allir með sínum börnum?
Reiknum ekki með neinu öðru en okkur sjálfum til að laga það sem laga þarf í lestri barnanna okkar. Tölvur eru vissulega komnar til að vera og skólar og opinberir aðilar hafa skýr verkefni til að leysa vandann en það erum fyrst og fremst við sem stöndum börnunum næst, foreldrarnir, sem skipta mestu máli í verkefninu að bæta læsi ungrar kynslóðar. Hvert og eitt okkar þarf að tryggja að börnin okkar, börn vina, barnabörn, frændur og frænkur læri að meta bækur, hafi ánægju af því að lesa og læri að njóta þeirrar gjafar sem það er að lesa sjálfur.

Sumir velta eðlilega fyrir sér, eins uppteknir og þeir eru, hvort það hafi nokkur áhrif að lesa fyrir börn. Kannski eru þetta þeir foreldrar sem lesa lítið sjálfir og eiga erfitt með að lesa upphátt. Aðrir eru ekki af íslensku bergi brotnir og telja sig ekki lesa nógu vel. Sumir telja jafnvel að nýjustu tækin geti verið áhugaverðari og lærdómsríkari fyrir börnin en lestur bókar. Enn aðrir velta fyrir sér hvort lítið barn barn skilji yfirhöfuð nokkuð af því sem lesið er fyrir það.


Strax frá fæðingu
Ekki myndum við vilja bíða með að tala við barnið þar til það skilur allt sem sagt er? Og ekki sleppum við því að syngja fyrir börnin þar til þau geta sungið sjálf? Þvert á móti! Okkar verkefni er að minna aðra á að allir geti lesið, sagt vísur eða sögur fyrir börn og að við öll getum lagt okkar af mörkum. Mikilvægt er einnig að gera sér grein fyrir að hlutverki okkar er síður en svo lokið þó barnið byrji í skóla og hefji sitt formlega lestrarnám. Við fullorðna fólkið erum fyrirmyndirnar. Sýnum þeim að við lesum líka, höfum bækur á náttborðinu og allt í kringum okkur.

Barnið upplifir sterk áhrif þess að þú og þeir sem standa því næst sýni því og bókinni áhuga á sömu stundu og fær skýr skilaboð um að lestur sé hæfileiki sem sé þess virði að læra. Þátttaka okkar er mikilvæg og getur skipt sköpum. Notum stundir okkar með börnum til að lesa, segja sögur eða vísur og spjalla. Lesum fyrir öll börn, fjölbreytt efni, hvenær sem er og hvar sem er og gefum börnunum ánægju af lestri í vöggugjöf.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 26. maí. 2012 06:00

Bankablús

Viðbúið var að rekið yrði upp margraddað ramakvein þegar Landsbankinn tilkynnti um uppsagn...  

Meira
Fastir pennar 26. maí. 2012 06:00

Á Heimaey betur heima í ríkissjóði?

Ný Heimaey í eigu Ísfélagsins kom fyrir skömmu til heimahafnar í Vestmannaeyjum. Margir hr...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 12:53

Útlendingar og Íslendingar

Stjórnarfar í Kína er ömurlegt. Sérstaklega læt ég ógeðslega ritskoðunartilburði fara í ta...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Raunhæfa planið

Þegar gjaldeyrishöft voru sett á í kjölfar hrunsins töldu flestir þau tímabundna ráðstöfun...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Umsókn um málfrelsi

Fyrir seinustu alþingiskosningar bauð RÚV framboðunum að fá ókeypis kynningartíma í sjónva...  

Meira
Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Vöggugjöf