Menning

Voces Thules og Bach-sveitin í Skálholti

Elfa Rún Kristinsdóttir fiðluleikari leikur einleik með Bachsveitinni.
Elfa Rún Kristinsdóttir fiðluleikari leikur einleik með Bachsveitinni.
Voces Thules hefur þriðju viku Sumartónleika í Skálholti með tónleikum í kvöld klukkan 20. Á tónleikunum verður sungið á 12. og 13. aldar íslensku og latínu. Í tilefni af upphafi Skálholtshátíðar verður m.a. prósan Innocentem te servavit sungin til heiðurs Þorláki Þórhallssyni biskupi í Skálholti á 12. öld. Að þessu sinni verður þessi þekktasti söngur úr Þorlákstíðum í fjölradda útfærslu. Spuni verður ríkjandi á tónleikunum, en hann var jafn eðlilegur hluti af tónlistariðkun á miðöldum og nú, þó svo að kirkjufeður gerðu annað slagið tilraun til að koma í veg fyrir hann.



Annað kvöld er það Bachsveitin í Skálholti sem kemur fram á Sumartónleikum klukkan 20 og einnig á laugardaginn, 19. júlí, klukkan 16 og 21. Leiðari sveitarinnar er Peter Spissky en einleikarar með Bachsveitinni að þessu sinni verða Jóhanna Halldórsdóttir altsöngkona og Elfa Rún Kristinsdóttir fiðluleikari.



Dagskráin sem leikin er á föstudagskvöld verður endurtekin á laugardagskvöld og verður þar hinn ítalski barokkstíll ráðandi. Þá verða m.a. aríur eftir Händel og sinfóníur eftir Vivaldi á dagskrá. Á laugardaginn klukkan 16 gefst svo tónleikagestum tækifæri á því að upplifa samruna hins ítalska stíls og þess franska, en á barokktímanum var oft rifist um hvor stíllinn væri betri. Þessi blandaði stíll er nú á dögum oft kallaður þýskur stíll. Á dagskrá eru m.a. verk eftir Lully, Telemann og Muffat.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×