Bíó og sjónvarp

Vivian leikur þýska konu í íslenskri hrollvekju

Stefán Árni Pálsson skrifar
Vivian Ólafsdóttir.
Vivian Ólafsdóttir.
Nú er tökum að ljúka á íslensku hrollvekjunni Mara. Mara hefur verið í tökum í rúmt ár, en myndin er tekin upp á Vesturlandi og í Bandaríkjunum og verður hún gefin út á alþjóðlegum markaði á næsta ári.

Mara fjallar í stuttu máli um par sem flytur frá Bandaríkjunum til Íslands til að opna gistiheimili úti í íslensku sveitinni. Þau kaupa gamalt hús og komast fljótt að því að það er ekki allt með felldu þegar þau finna djúpa holu í kjallaranum, en þar undir býr forn vættur sem aðeins hefur heyrst um í þjóðsögum. Stuttu eftir það fara stórfurðulegir hlutir að gerast.

Leikstjóri myndarinnar er Elvar Gunnarsson, en með aðalhlutverk fara Gunnar Kristinsson og Vivian Ólafsdóttir. Einnig koma aðrir íslenskir stórleikarar við sögu, s.s. Halldóra Geirharðsdóttir, Halldór Gylfason, Þór Túliníus, Björn Jörundur og Darren Foreman.

Hér að neðan má sjá viðtal sem tekið var við Vivian Ólafsdóttir leikkona sem fer með hlutverk Miru í myndinni Mara. Mira er þýsk og starfar sem barnasálfræðingur. Hún kynnist Pétri, leikinn af Gunnari Kristinssyni, í Bandaríkjunum og þau ákveða að flytja út í íslensku sveitina og opna þar gistiheimili.

Videoblogg Möru - Vivian Ólafs from 23 Frames on Vimeo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×