Erlent

Vitni lýsa árásinni sem algjörum hryllingi

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Þungvopnað lið lögreglu á vettvangi í gær.
Þungvopnað lið lögreglu á vettvangi í gær. Nordicphotos/AFP
Þingmenn á breska þinginu voru læstir inni í þingsal, umferð var stöðvuð og ýmsar aðrar varúðarráðstafanir voru gerðar í kjölfar árásar í nágrenni breska þinghússins í gær. Málið er rannsakað sem hryðjuverkaárás og fór rannsókn af stað í gær.

Lögregla telur að einn árásarmaður hafi verið að verki. Samkvæmt yfirlýsingu frá lögreglunni í Lundúnum sögðu vitni árásarmanninn hafa ekið fólk niður og stungið lögreglumann til bana við þinghúsið. Sjálfur var árásarmaðurinn skotinn á vettvangi, lóð breska þingsins, og lést hann af sárum sínum.

Þegar Fréttablaðið fór í prentun voru alls fjórir látnir. Það er lögreglumaðurinn, árásarmaðurinn og tveir aðrir. Sömuleiðis voru rúmlega tuttugu særðir, þar af þrír lögreglumenn og þrjú frönsk skólabörn á unglingsaldri sem voru í vettvangsferð með samnemendum.

„Fólk flaug um eins og fótboltar þegar hann ók það niður. Þetta er ekki eitthvað sem ég myndi vilja verða vitni að á hverjum degi,“ sagði vitni að nafni Ismail í viðtali við BBC. Hann, sem og fleiri vitni, lýsti árásinni sem algjörum hryllingi. Sagðist Ismail hafa orðið líkamlega illt þegar hann sá árásarmanninn keyra fólk niður.

Í samtali við fréttastofu í gær sagði Garðar Agnarsson Hall, matreiðslumeistari hjá lávarðadeild þingsins, að engum væri hleypt út og engum inn. „Þetta er bara algjört „lockdown“ eins og þeir kalla það hérna. Við erum raunverulega varin af hryðjuverkalögreglunni. Það er bara búið að loka húsinu en við vitum ekkert meira,“ sagði Garðar. Hann sagði fólk rólegt þó tilfinningin væri óþægileg.

Alþjóðasamfélagið vottaði Bretum samúð í kjölfar árásarinnar. Þannig sagði Angela Merkel, kanslari Þýskalands, árásina koma sér í opna skjöldu. „Hugur minn er hjá hinum særðu. Við stöndum með Bretum,“ segir í yfirlýsingu Merkel.

FranÇois Hollande, forseti Frakklands, tók í sama streng. „Hryðjuverk hafa áhrif á okkur öll. Frakkar þekkja vel þá þjáningu sem Bretar þurfa að þola í dag,“ segir í yfirlýsingu Hollande.

Sean Spicer, fjölmiðlafulltrúi Donalds Trump Bandaríkjaforseta, sagði Bandaríkin fordæma árásina.

Borgarstjóri Lundúna, Sadiq Khan, tjáði sig einnig um árásina. Sagði hann að öryggisgæsla í borginni yrði aukin héðan í frá. „Lundúnabúar munu aldrei beygja sig fyrir hryðjuverkamönnum.“ 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×