Glamour

Vissi ekki að foreldrar sínir væru frægir

Ritstjórn skrifar
Brooklyn ásamt föður sínum.
Brooklyn ásamt föður sínum. vísir/BPI/javier Garcia
Brooklyn Beckham, sonur David og Victoria Beckham,  er í einlægu viðtali í tímaritinu Wonderland. Þar afhjúpaði hann að meirihluta lífs síns hafi hann ekki vitað að foreldrar sínir væru frægir. Brooklyn er 17 ára í dag. 

Hann lýsir stundinni í viðtalinu þegar hann fattaði það. Fjölskyldan var stödd á fótboltaleik og allt í einu fóru allir að hrópa nafn föðurs síns. Þessi uppgötvun kom honum virkilega á óvart. 

Það verður að segjast að það er ansi vel gert að halda þessum fréttum leyndum svo lengi, enda eru David og Victoria Beckham líklega einar af frægustu stjörnum Bretlands. 






×