Lífið

Vissi að hún væri lessa þegar hún var fimm ára

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Söngkonan Charice er gestur í næsta þætti af Where Are They Now? með spjallþáttadrottningunni Opruh Winfrey. Þátturinn verður sýndur á sunnudaginn vestan hafs en í þættinum talar Charice til dæmis um hvenær hún vissi að hún væri samkynhneigð.

„Ég vissi það þegar ég var fimm ára. Ég var í skóla og sá stelpu og mér leið öðruvísi. Ég vissi ekki hvað það var en ég vissi að þessi tilfinning var sérstök. Þegar ég varð tíu ára hugsaði ég: Já, þetta er málið. Ég er samkynhneigð. Ég fann orðið,“ segir Charice. 

Söngkonan sló í gegn á YouTube og var uppgötvuð árið 2007. Síðan þá hefur hún til dæmis leikið í sjónvarpsþáttunum Glee. Árið 2013 kom hún út úr skápnum.

Oprah spyr Charice meðal annars í viðtalinu hvort hún hafi einhvern tímann viljað gangast undir kynleiðréttingaraðgerð. 

„Nei, ekki breyta mér í karlmann en sál mín er karlkyns. En ég ætla ekki að breyta öllu - breyta líkama mínum. Ég breyti mér öðruvísi, klippi hárið og klæðist strákafötum en það er allt og sumt.“

Charice árið 2011.vísir/getty





Fleiri fréttir

Sjá meira


×