Viðskipti innlent

Vísitalan lækkar á milli mánaða

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/hari
Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í júlí 2014 er 422,1 stig og lækkaði um 0,17 prósent frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 396 stig og lækkaði um 0,23 prósent frá júní. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Sumarútsölur eru víða í gangi og eru þær helsta ástæða vísitölulækkunar í júlí mánuði. Verð á fötum og skóm lækkaði um 11,6 prósent og hækkuðu flugfargjöld til útlanda um 17 prósent.

Þá hefur vísitala neysluverðs síðastliðna tólf mánuði hækkað um 2,4 prósent og vísitalan án húsnæðis hækkað um 1,4 prósent. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,3 prósent sem jafngildir eins prósenta verðbólgu á ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×