Samstarf

Vísir og Job.is í samstarf

Tinni Sveinsson
Kolbeinn Pálsson, framkvæmdastjóri job.is, og Bjarni Þór Sigurðsson, verkefnastjóri auglýsingadeildar Vísis.
Kolbeinn Pálsson, framkvæmdastjóri job.is, og Bjarni Þór Sigurðsson, verkefnastjóri auglýsingadeildar Vísis. Vísir/GVA
Job.is og 365 miðlar hafa ákveðið að ráðast í samstarf til að styrkja stöðu beggja aðila á sviði atvinnuauglýsinga.

Frá og með deginum í dag birtast atvinnuauglýsingar Vísis á slóðinni job.visir.is. Tengingar við vefinn eru þær sömu og áður, undir hlekknum Atvinna í haus Vísis.

Atvinnuvefur Vísis hefur um árabil verið einn öflugasti atvinnuvefur landsins en þar birtast meðal annars í hverri viku auglýsingar úr Atvinnublaði Fréttablaðsins. Þetta fyrirkomulag helst óbreytt og munu auglýsingar úr Fréttablaðinu nú birtast á nýja atvinnuvefnum, job.visir.is.

Það sem auglýsendur græða meðal annars á þessu samstarfi er aðgangur að fullkomnu úrvinnslukerfi job.is. Þar er hægt að eiga samskipti við alla umsækjendur og vinna úr umsóknum með einföldum og skilvirkum hætti.

Job.is hefur verið vettvangur atvinnuauglýsinga á netinu frá 1999. Fyrirtækið hefur mikla þekkingu á aðstæðum auglýsenda og atvinnuleitenda og er með þúsundir einstaklinga á skrá í virkri leit að nýju starfi eða öðru starfi.

Sjá nánar:

Kynningartilboð vegna samstarfsins

Yfirlit yfir atvinnuauglýsingar

Sölufulltrúar fyrir atvinnublað Fréttablaðsins






Fleiri fréttir

Sjá meira


×