Samstarf

Vísir mælist stærstur

Tinni Sveinsson
Mörg mál vöktu athygli í síðustu viku.
Mörg mál vöktu athygli í síðustu viku. Vísir

Vísir er í fyrsta sæti yfir vinsælustu vefi landsins samkvæmt nýjum topplista Gallup. Í síðustu viku reyndist íslenski notendafjöldinn einn sá mesti frá upphafi.

Vísir mældist með ríflega 175 þúsund íslenska notendur á dag að meðaltali yfir vikuna, sem náði frá 28. nóvember til 4. desember.

Virku dagana sóttu 186 þúsund notendur vefinn að meðaltali á dag og um helgina voru þeir 148 þúsund. Þá lásu einnig ríflega 30 þúsund erlendir notendur Vísi á dag.

Nýr topplisti yfir aðsókn að stærstu vefmiðlum landsins birtist vikulega.

Þennan mikla lesendafjölda má rekja til margra fréttamála sem dreifðu sér jafnt yfir vikuna. 

Lyfjapróf á Íslandsmeistaramótinu í CrossFitslæmur aðbúnaður hænsna hjá Brúneggjum, meint frelsissviptingarmál í Fellsmúla, landsliðsnefnd KSÍ og trúðafaraldur í Grafarvogi var meðal þess sem vakti mesta athygli lesenda.

Næsti vefur á listanum er mbl.is með um 172 þúsund notendur á dag. Því næst kemur DV með 84 þúsund, RÚV með 70 þúsund og Já með 51 þúsund notenda á dag.

Gallup heldur utan um mælinguna og er hægt að rýna nánar í tölurnar á síðunni topplistar.gallup.is. Á síðunni er einnig hægt að skoða dekkun þeirra netmiðla sem taka þátt í mælingunni eftir kyni, aldri, búsetu, menntun og tekjum en þeim upplýsingum var nýlega bætt við.

Ritstjórn Vísis þakkar lesendum sínum kærlega fyrir heimsóknirnar undanfarnar vikur.

Við tökum fagnandi við ábendingum, innsendum greinum og athugasemdum á ritstjórnarpóstinum okkar (ritstjorn@visir.is) og minnum á að nýjustu og helstu fréttir okkar eru birtar jafnóðum á Facebook-síðu Vísis þar sem samtal við lesendur er einnig mjög virkt allan sólarhringinn.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×