Menning

Vísir birtir bóksölulistana í heild sinni: Arnaldur og Yrsa bítast um toppinn enn og aftur

Jakob Bjarnar skrifar
Bóksölukóngur og drottning. Arnaldur og Yrsa. Þau ætla að verja krúnuna af miklu öryggi þetta árið, með glæpasögum sínum.
Bóksölukóngur og drottning. Arnaldur og Yrsa. Þau ætla að verja krúnuna af miklu öryggi þetta árið, með glæpasögum sínum.
Þýska húsið hans Arnaldar er í fyrsta sæti Bóksölulistans eftir fyrstu þrjár vikur nóvember og nær auk þess að klifra í annað sæti listans yfir mest seldu bækur ársins. Búast má við mikilli baráttu um hið eftirsótta bóksöluhásæti á næstu vikum. Sogið eftir Yrsu Sigurðardóttur kom út 13. nóvember og nær öðru sæti listans þrátt fyrir að hafa aðeins nýtt helming þess tímabils sem Bóksölulistinn nær til að þessu sinni.

Þetta er athyglisvert en í fyrra var sem þessi glæpasagnakonungshjón væru að gefa eftir en þau mæta tvíefld til leiks í ár og verja krúnuna af miklum styrk.

Ólafur Jóhann er líklegur til að velgja glæpasagnakóngi og drottingu undir uggum.
Sterk skáldsagnajól 

Vísir hefur undir höndum bóksölulista frá Félagi íslenskra bókaútgefenda og birtir þá í heild sinni.  Hér eru á ferð mest seldu bækur landsins fyrstu þrjár vikurnar í nóvember.  Til stendur að fylgjast reglulega með gangi mála allt fram að jólum, en  þetta er nú það sem allt snýst um í bókaútgáfunni, hvort sem menn vilja viðurkenna það eða ekki. Og gaman er að rýna í listana.

Fjölmargir skáldsagnahöfundar hafa svo verið að koma sér fyrir á hlaupabrautinni að undanförnu. Að þessu sinni eru það þau Ólafur Jóhann, Jón Gnarr, Einar Már, Ragnar Jónasson, Jón Kalman, Auður Jónsdóttir, Stefán Máni og Kristín Helga sem komast á blað yfir mest seldu skáld landsins. Auk þeirra er ekki ólíklegt að metsölugæðingarnir Gunnar Helgason, Ævar Þór Benediktsson, Vilhelm Anton Jónsson og svo sjálfur forsetaframbjóðandinn Þorgrímur Þráinsson eigi eftir að blanda sér í toppslaginn við Arnald og Yrsu með barnabókum sínum sem eru sterkar á svellinu sem aldrei fyrr.

Páll Baldvin er mættur til leiks og með sokkana uppi.
Páll Baldvin mættur á völlinn og með sokkana uppi 

Stríðsárabók Páls Baldvins hefur vakið mikla eftirtekt og fer vel af stað, en sú bók er til þess að gera nýútkomin.

„Þetta er svona bókin sem ég mundi veðja á að borgaði sig að kaupa snemma, bóksalanefið segir manni að hún gæti selst upp, jafnvel oftar en einu sinni, fram að jólum. Svona þykkar bækur blekkja svo birgðahaldið, miklu færri bækur í staflanum en umfangið gefur til kynna,“ segir Bryndís Loftsdóttir hjá Félagi bókaútgefenda, en hún er Vísi til halds og trausts við að spá í spilin.

Fræði- og handbókaútgáfan er fjölbreytt og mjög góð í ár, nánast ómögulegt að spá í því strax hverjir mestrar hylli munu njóta og auðvitað best ef salan dreifist sem mest þannig að ekki verði mörg eintök af sama titlinum undir trjám landsmanna um jólin.  En, Páll og aðrir í þeim flokki eiga við ramman reip að draga því þar er fyrir á fleti metsöluboltinn Óttar Sveinsson sem á traustan hóp lesenda með hamfarabókaflokk sinn vinsæla.

Bókaútgáfan Sena gefur út bókina um Gylfa Sigurðsson og hún er á toppi lista í flokki ævisagna.
Ævisögurnar eins og rjúpnastofninn 

Ævisögurnar hafa verið svolítið seinar á ferð í ár. Ævisögurnar eru svolítið eins og rjúpnastofninn, þær koma upp reglulega, á tíu til fimmtán ára fresti og eigna sér þá sviðið. En víst er að skáldsögurnar og svo barnabækur munu vilja hafa sitt um það að segja þetta árið þó samkvæmt rjúpnakenningunni ætti að vera kominn tími á ævisögurnar. Ekki verður annað sagt en að þar fari fjölbreyttur hópur fólks, bæði höfunda og þeirra sem til umfjöllunar eru nema hvoru tveggja sé.

Flokkurinn sem slíkur stenst ekki Bechtel-prófið því að af 10 mest seldu ævisögum er aðeins ein um konu - Brynhildur Georgía Björnsson. Konur hafa nefnilega í gegnum tíðina átt gott mót einmitt í þessum flokki bóka: Sendiherrafrú segir frá, Uppgjör konu – Halla Linker segir frá og fleiri dæmi má nefna. Nú er það atvinnumaðurinn Gylfi Sigurðsson eftir þá Ólaf Þór Jóelsson og Viðar Brink sem er þar á toppi lista en á hæla þeim er rithöfundurinn Mikael Torfason með nýútkomna bók, Týnd í paradís, og hann er til alls líklegur.

Topplistinn

söluhæstu titlar Bóksölulistans dagana 1.-22. nóvember

1. Þýska húsið - Arnaldur Indriðason

2. Sogið - Yrsa Sigurðardóttir 

3. Himneskt að njóta - Sólveig Eiríksdóttir / Hildur Ársælsdóttir 

4. Þín eigin goðsaga - Ævar Þór Benediktsson 

5. Útkall í hamfarasjó - Óttar Sveinsson 

6. Víga-Anders og vinir hans - Jonas Jonasson 

7. Endurkoman - Ólafur Jóhann Ólafsson 

8. Mamma klikk! - Gunnar Helgason 

9. Útlaginn - Jón Gnarr 

10. Matreiðslubókin mín og Mikka - Walt Disney



Ævisögur

1. Atvinnumaðurinn Gylfi Sigurðsson - Ólafur Þór Jóelsson / Viðar Brink

2. Týnd í paradís - Mikael Torfason 

3. Munaðarleysinginn - Sigmundur Ernir Rúnarsson 

4. Brynhildur Georgía Björnsson - Ragnhildur Thorlacius 

5. Þá hló Skúli - Óskar Guðmundsson 

6. Egils sögur - á meðan ég man - Páll Valsson og Egill Ólafsson 

7. Eitt á ég samt : endurminningar - Árni Bergmann 

8. Yfir farinn veg með Bobbi Fischer - Garðar Sverrisson 

9. Þetta var nú bara svona - Jóhann Guðni Reynisson 

10. Bítlarnir telja í - Mark Lewisohn

Íslensk skáldverk  

1. Þýska húsið - Arnaldur Indriðason 

2. Sogið - Yrsa Sigurðardóttir  

3. Endurkoman - Ólafur Jóhann Ólafsson  

4. Útlaginn - Jón Gnarr  

5. Hundadagar - Einar Már Guðmundsson  

6. Dimma - Ragnar Jónasson  

7. Eitthvað á stærð við alheiminn -  Jón Kalman Stefánsson  

8. Stóri skjálfti - Auður Jónsdóttir  

9. Nautið - Stefán Máni  

10. Litlar byltingar - Kristín Helga Gunnarsdóttir 

Þýdd skáldverk 

1. Víga-Anders og vinir hans - kilja - Jonas Jonasson  

2. Hrellirinn - Lars Kepler

3. Stúlkan í trénu - Jussi Adler Olsen  

4. Víga-Anders og vinir hans - innb. - Jonas Jonasson  

5. Þú ert ætíð í huga mér - kilja - Mary Higgins Clark  

6. Hamingjuvegur - Liza Marklund  

7. Þú ert ætíð í huga mér - innb. - Mary Higgins Clark  

8. Náðarstund - Hannah Kent  

9. Flugnagildran - Fredrik Sjöberg  

10. Það sem ekki drepur mann - David Lagercrantz 

Barnabækur 

1. Þín eigin goðsaga - Ævar Þór Benediktsson  

2. Mamma klikk! - Gunnar Helgason  

3. Matreiðslubókin mín og Mikka - Walt Disney  

4. Skósveinarnir - leitið og finnið – Bókaútgáfan Hólar 

5. Leyniturninn á Skuggaskeri - Sigrún Eldjárn  

6. Kvöldsögur fyrir krakka – Setberg 

7. Vikkala Sól og hamingjukrúsin - Kristín Margrét Kristmannsdótt  

8. Dýrasögur – Setberg 

9. Spurningabókin 2015 - Bjarni Þór Guðjónsson  

10. Prinsessusögur - Setberg

Ungmennabækur

1. Stelpur - Kristín Tómasdóttir 

2. Fótboltaspurningar 2015 - Bjarni Þór Guðjónsson 

3. Fótbolti : Bestu karlarnir - Illugi Jökulsson / Björn Þ. Sigbjörnsson 

4. Leitin að tilgangi unglingsins - Bryndís Björgvinsdóttir / Arnór Björnsson / Óli Gunnar Gunnarsson 

5. Sölvasaga unglings - Arnar Már Arngrímsson 

6. Vetrarfrí - Hildur Knútsdóttir 

7. Drauga-Dísa - Gunnar Theodór Eggertsson 

8. Violet og Finch - Jennifer Niven 

9. 30 undur veraldar - Helgi Hrafn Guðmundsson 

10. Skytturnar þrjár - Illugi Jökulsson 



Fræði og almennt efni

1. Útkall í hamfarasjó - Óttar Sveinsson 

2. Þarmar með sjarma - Giulia Enders

3. Traktorar í máli og myndum - Jemima Dunne 

4. Tíminn minn : dagbók 2016 - Björg Þórhallsdóttir  

5. Stríðsárin 1938 - 1945 - Páll Baldvin Baldvinsson 

6. Hugarfrelsi - Hrafnhildur Sigurðardóttir og Unnur Arna Jónsdóttir

7. Það er gott að búa í Kópavogi! - Gunnar Kr. Sigurjónsson / Guðjón Ingi Eiríksson 

8. Hersetan á Ströndum og Norðurlandi vestra - Friðþór Eydal 

9. Nína S. - Hrafnhildur Schram 

10. Náttúruvá á Íslandi - Júlíus Sólnes 



Ljóð & leikrit 

1. Öskraðu gat á myrkrið - Bubbi Morthens

2. Frelsi - Linda Vilhjálmsdóttir  

3. Ljóðasafn - Vilborg Dagbjartsdóttir 

4. Perlur úr ljóðum íslenskra kvenna - Ýmsir / Silja Aðalsteinsdóttir ritst. 

5. Fjörutíu ný og gömul ráð við hversdagslegum uppákomum - Óskar Árni Óskarsson 

6. Stormviðvörun - Kristín Svava Tómasdóttir 

7. Ljóðaúrval - Gyrðir Elíasson 

8. Hugmyndir : andvirði hundrað milljónir - Halldór Halldórsson 

9. Nýsnævi - ljóðaþýðingar - Ýmsir / Aðalsteinn Ásberg þýddi 

10. Blýengillinn : ljóð með og án orða - Óskar Árni Óskarsson 

Matreiðslubækur

1. Himneskt að njóta - Sólveig Eiríksdóttir / Hildur Ársælsdóttir 

2. Stóra Disney heimilisréttabókin - Margrét Þóra Þorláksdóttir ritst. 

3. Hollar og heillandi súpur - Rósa Guðbjartsdóttir 

4. Vín - umhverfis jörðina á 110 flöskum - Steingrímur Sigurgeirsson 

5. Grillréttir Hagkaups - Hrefna Rósa Sætran 

6. Sætmeti án sykurs - Nanna Rögnvaldardóttir 

7. Veisluréttir Hagkaups - Friðrika Hjördís Geirsdóttir 

8. Café Sigrún -  Sigrún Þorsteinsdóttir 

9. Ömmumatur Nönnu - Nanna Rögnvaldardóttir 

10. Glútenfrítt líf -  Þórunn Eva Guðbjargar Thapa 

Handverksbækur

1. Fléttur - Laura Kristine Arnesen 

2. Íslensk litadýrð - Elsa Nielsen 

3. Litabókin hans Nóa -   

4. Peysubókin - Lene Holme Samoe 

5. Heillandi heimur dýranna -  Litabók til slökunar 

6. Týnda hafið - Johanna Basford  7. Leynigarður - Johanna Basford 

8. Prjónað úr íslenskri ull - Ístex 

9. Sokkaprjón - Guðrún S. Magnúsdóttir  

10. Húfuprjón - Guðrún S. Magnúsdóttir 

Hljóðbækur

1. Þýska húsið - Arnaldur Indriðason 

2. Útkall í hamfarasjó - Óttar Sveinsson

3. Sogið - Yrsa Sigurðardóttir 

4. Lygi - Yrsa Sigurðardóttir 

5. Mamma klikk! - Gunnar Helgason 

6. Skuggasund - Arnaldur Indriðason 

7. Jómfrú Ragnheiður : Skálholt I - Guðmundur Kamban 

8. Gula spjaldið - Gunnar Helgason 

9. Fíasól er flottust - Kristín Helga Gunnarsdóttir 

10. Rof - Ragnar Jónsson 

Uppsafnaður listi frá áramótum

Söluhæstu bækurnar frá 1. janúar

1. Leynigarður - Johanna Basford 

2. Þýska húsið - Arnaldur Indriðason 

3. Himneskt að njóta - Sólveig Eiríksdóttir / Hildur Ársælsdóttir 

4. Afturgangan - Jo Nesbø 

5. Stúlkan í tréinu - Jussi Adler Olsen 

6. Konan í lestinni - Paula Hawkins 

7. Iceland : Small World (lítil) - Sigurgeir Sigurjónsson 

8. Blóðið í snjónum - Jo Nesbø 

9. Hamingjuvegur - Liza Marklund 

10. Hrellirinn - Lars Kepler 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×