Innlent

Vísindamenn skoða orsakir skriðunnar í Öskju

Bjarki Ármannsson skrifar
Talið er að 24 milljónir rúmmetra af jarðefnum hafi fallið í vatnið.
Talið er að 24 milljónir rúmmetra af jarðefnum hafi fallið í vatnið. Mynd/Jara Fatima Brynjólfsdóttir
„Menn átta sig ekki á þessu fyrr en um tvöleytið á þriðjudag þegar landvörður frá okkur kemur inn að Víti,“ segir Hjörleifur Finnsson, þjóðgarðsvörður á norðursvæði Vatnajökuls-þjóðgarðs. Gríðarlegt berghlaup, sem talið er það allra stærsta síðustu áratugi, féll í Öskjuvatn seint á mánudagskvöld.

Lokað hefur nú verið fyrir umferð að norðausturhluta Öskjuvatns, þeim hluta sem snýr að Víti. Heimilt er þó að ferðast að Öskju. Að sögn Hjörleifs er svæðið þar sem skriðan féll utan alfaraleiðar og var því ekki þörf á að loka sérstaklega fyrir umferð þar.

„Venjulega væri þar lítil eða engin umferð,“ segir Hjörleifur. „Það eru kannski tveir á ári sem ganga hringinn á toppunum, þannig að það eru litlir hagsmunir í húfi þótt það sé bannað.“

Landslagið á bökkum Öskjuvatns er talsvert breytt í kjölfar skriðunnar og flóðsins.Mynd/Axel Aage Schiöth
Niðurstöðu að vænta á morgun

Skriðan féll í suðausturhluta vatnsins og olli mikilli flóðbylgju sem gekk allt að 120 metra upp fyrir yfirborð vatnsins og náði inn í Víti. Mikil mildi þykir að enginn var þarna á ferð þegar skriðan féll en mikið er jafnan um ferðamenn á svæðinu á þessum árstíma.

Hjörleifur hefur eftir Ármanni Höskuldssyni jarðfræðingi, sem skoðaði ummerki skriðunnar á þriðjudag, að um 24 milljónir rúmmetra hafi fallið í vatnið hið minnsta. Alls hafi landfall í skriðunni getað numið 50 til 60 milljónum rúmmetra.

Vísindamenn á vegum Veðurstofunnar og Háskóla Íslands mættu á vettvang í gærkvöldi til að kanna umfang og orsakir skriðunnar. Enn er óljóst hvað nákvæmlega olli skriðunni en talið er að snjóbráð á svæðinu hafi mögulega hrint henni af stað.

Lokunin að Öskjuvatni gildir að minnsta kosti til morguns, en þá á niðurstaða vísindamannanna að liggja fyrir um það hvert umfang skriðunnar er og hvort hætta sé á frekari skriðuföllum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×