Lífið

Vísbendingar um slæm áhrif samfélagsmiðla á íslensk pör

Stefán Árni Pálsson skrifar
Niðurstöðurnar eru nokkuð athyglisverðar.
Niðurstöðurnar eru nokkuð athyglisverðar.
„Mikilvægt er að takmarka tímann sem við eyðum á samfélagsmiðlum, verum meðvituð um að færslur fólks eru oftar en ekki glansmynd af lífi þess. Þannig ekki setja óraunhæfar væntingar á þitt samband með því að bera það saman við sambönd annarra,“ segir háskólaneminn Júlía Guðbjörnsdóttir sem skoðaði áhrif samfélagsmiðla á sambönd í lokaritgerð sinni í félagsfræði við Háskóla Íslands sem ber heitið Áhrif samfélagsmiðla á sambönd.

Niðurstöður rannsóknarinnar eru nokkuð sláandi. Júlía telur að með því að vera meðvitaðar um áhrif samfélagsmiðla á sambönd, er möguleiki að draga úr neikvæðu áhrifum þeirra. Hún segir að vantraust í garð maka vegna samfélagsmiðla sé meira hjá þeim sem séu yngri.

„Hins vegar er alveg ljóst að neikvæð áhrif þeirra á sambönd eru augljós. Lygar, tortryggni og jafnvel njósnir er eitthvað sem virðist í auknum mæli vera hluti af daglegu lífi para. Ef rýnt er í niðurstöðurnar og kafað dýpra má t.d. sjá að rifrildi um notkun samfélagsmiðla minnkar með hækkandi aldri.“

Ritgerðin fjallar um hvaða áhrif samfélagsmiðlar hefur á samband fólks. Margir tengja eflaust við niðurstöður Júlíu og virðist sem svo að lítið traust sé á milli fólks þegar kemur að samfélagsmiðlanotkun.

Samfélagsmiðlar eru tiltölulega nýtt fyrirbæri. Tímarnir breytast, samskipti í eigin persónu eru á undanhaldi og nú fara meirihluti samskipta okkar fram í gegnum samfélagsmiðla. Þegar þú hefur möguleika á að fletta upp og eiga samskipti við hvern sem er í heiminum á aðeins nokkrum sekúndum, hvaða áhrif hefur það á einkalífið? Hvaða áhrif hefur það á samband þitt?

Um rannsóknina

Efnið hefur lítið verið rannsakað hingað til enda viðfangsefnið frekar nýlegt. Alls var úrtakið 1720 manns á aldrinum 18-35 ára og eru í sambandi. 83 prósent af þeim sem tóku þátt í könnuninni eru konur og 17 prósent karlmenn.

Hér má kynna sér rannsóknina í heild sinni en hér að neðan má sjá nokkrar fróðlegar niðurstöður.

Ég hef upplifað afbrýðissemi vegna einhvers sem ég sá á samfélagsmiðli maka míns

Þeir einstaklingar sem voru á aldrinum 18-23 ára voru líklegri til að hafa upplifað afbrýðisemi vegna einhvers sem þau sáu á samfélagsmiðlum maka síns.

Ég hef falið eitthvað fyrir maka mínum á samfélagsmiðlum

Þeir sem eyða lengri tíma á samfélagsmiðlum eru líklegri til að hafa falið eitthvað á samfélagsmiðlum fyrir maka sínum.

39% þeirra sem eyða 7 klst eða meira á samfélagsmiðlum höfðu falið eitthvað fyrir maka sínum á samfélagsmiðlum.

Hefur þú farið inn á samfélagsmiðil/miðla maka þíns í leyfisleysi?

Mun fleiri konur en karlar hafa farið inn á samfélagsmiðil/miðla maka síns í leyfisleysi eða 45% kvenna og 30% karla.

Því meiri tíma sem þú eyðir á samfélagsmiðlum, því líklegri er einstaklingur til að hafa farið inn á samfélagsmiðil/miðla maka síns í leyfisleysi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×