Viðskipti innlent

Vísbendingar um skattundanskot: Nöfn hundraða Íslendinga til sölu hjá erlendum aðila

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Skattaskjólsmálin virðast fara í gegnum Lúxemborg með einum eða öðrum hætti, að sögn skattrannsóknarstjóra.
Skattaskjólsmálin virðast fara í gegnum Lúxemborg með einum eða öðrum hætti, að sögn skattrannsóknarstjóra. NORDICPHOTOS/AFP
Skattrannsóknarstjóri sendi fjármálaráðuneytinu fyrir rúmri viku greinargerð eftir að hafa farið yfir sýnishorn af gögnum með nöfnum nokkurra hundraða Íslendinga sem tengjast svokölluðum skattaskjólum. Sýnishornin fékk skattrannsóknarstjóri send frá aðila erlendis sem vill selja embættinu gögnin. Það er nú ráðuneytisins að meta hvort kaupa eigi gögnin, að sögn Bryndísar Kristjánsdóttur skattrannsóknarstjóra.

„Við höfum verið að skoða í sumar og haust sýnishornin frá þeim sem bauð gögnin. Þessi sýnishorn gefa vísbendingar um skattundanskot. Við skiluðum síðan greinargerð frá okkur til fjármálaráðuneytisins fyrir rúmri viku þar sem við lýstum grófri afstöðu okkar sem er eiginlega bæði og. Það er ekkert í hendi og það gæti verið þungt að afla annarra gagna sem nauðsynleg væru yrði tekin ákvörðun um rannsókn en síðan er það spurning hvort reyna eigi það sem hægt er. Nú er boltinn hjá ráðuneytinu og þeirra að meta hvort kaupa eigi gögnin eftir að þeir hafa farið yfir greinargerð okkar,“ segir Bryndís.

Bryndís Kristjánsdóttir
Meirihluti þeirra einstaklinga sem nefndur er í gögnunum sem skattrannsóknarstjóri fékk send hefur ekki áður komið við sögu í rannsóknum embættisins, að því er Bryndís greinir frá. „Við könnumst hins vegar við þetta að hluta til.“

Spurð um hvort nefnd séu skattaskjól sem ekki hafi áður komið við sögu í rannsóknum segir hún að flest málin virðist fara í gegnum Lúxemborg með einum eða öðrum hætti. „Þetta dreifist ekki mjög víða.“

Skattrannsóknarstjóra hefur nokkrum sinnum verið boðið að kaupa ýmis gögn, bæði stór og smá, frá útlöndum en hingað til hefur því verið hafnað. Bryndís segir ýmis önnur lönd hafa keypt slík gögn, til dæmis Þýskaland.

Yfirleitt er ekki vitað hverjir það eru sem bjóða gögnin til sölu. Samræður við seljendur hafa aldrei komist á það stig að verð hafi komið til tals, að því er Bryndís greinir frá.

Í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins um hvort fjármálaráðuneytið muni mögulega kaupa gögn um einstaklinga í skattaskjólum segir að greinargerð skattrannsóknarstjóra sé til skoðunar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×