Erlent

Vísbendingar um að ISIS hafi framkvæmt árásina í Istanbúl

Samúel Karl Ólason skrifar
Minnst fjórir létu lífið í sjálfmorðsárás í Istanbúl í morgun og 36 særðust, samkvæmt yfirvöldum í Tyrklandi. Af hinum látnu er vitað að þrír frá Ísrael og einn frá Íran. Yfirvöld í Bandaríkjunum sögðu frá því nú í kvöld að tveir af ríkisborgurum þeirra hefðu látið lífið í árásinni. Ekki liggur fyrir hvort um hafi verið að ræða fólk með tvöfaldan ríkisborgararétt eða að sex hafi látið láfið.

Enn hefur ekki fengist staðfest hvort að Íslendingur hafi særst í árásinni, en svo sögðu yfirvöld í Tyrklandi í tilkynningu. Borgaraþjónusta Utanríkisráðuneytisins hefur reynt að fá staðfest að svo sé.

Stjórnvöld í Ísrael segja að vísbendingar bendi til að árásin hafi verið framkvæmd af Íslamska ríkinu, en Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra, segir of snemmt að segja til um það.

Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni, sem er fjórða hryðjuverkaárásin í Tyrklandi á þessu ári og sú sjötta frá því í júlí. Bæði uppreisnarmenn meðal Kúrda og vígamenn Íslamska ríkisins hafa gert árásir í Tyrklandi.

Myndbönd af árásinni hafa verið birt af fjölmiðlum í Tyrklandi og eru í dreifingu á samfélagsmiðlum. Þar má sjá karlmann ganga á Istiklal Caddesi, vinsælli verslunargötu, og sprengja sig í loft upp meðal fólks. Venjulega er mikil mannmergð á verslunargötunni, en árásin var framkvæmd það snemma í morgun, um klukkan níu, að enn var tiltölulega fámennt þar.

Vert er að vara við því að myndböndin gætu vakið óhug meðal lesenda.


Tengdar fréttir

Óstaðfest að Íslendingur hafi særst

Tyrknesk stjórnvöld sögðu svo vera en borgaraþjónusta Utanríkisráðuneytisins hefur ekki staðfest það þrátt fyrir miklar eftirgrennslanir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×