Skoðun

Virkir foreldrar skapa betri skóla

Anna Margrét Sigurðardóttir skrifar
Í ár eru tímamót hjá Heimili og skóla – landssamtökum foreldra. Foreldraverðlaunin verða afhent í tuttugasta sinn þann 20. maí nk. við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu við Hverfisgötu að viðstöddum mennta- og menningarmálaráðherra.

Samstarf foreldra

Foreldraverðlaunum Heimilis og skóla er ætlað að beina sjónum að því sem vel er gert í skólasamfélaginu og að því gróskumikla starfi sem á sér stað með börnum í leik-, grunn- og framhaldsskólum. Við val á verkefnum er horft til þess að þau feli í sér aukið samstarf skóla, heimila og annarra aðila sem vinna og stuðla að æskulýðsstarfi í sínu nærsamfélagi. Einnig er litið til þess hvort verkefni hafi skapað jákvæðar hefðir í samfélaginu og hvort þau hafi náð að festast í sessi. Mikil viðurkenning felst í því að fá tilnefningu til Foreldraverðlauna og í því felst hvatning til þeirra sem oft og tíðum leggja á sig ómælda vinnu.

Virkir foreldrar

Samstarf foreldra innan skóla felur í sér mikinn auð og er mikilvægur liður í að skapa jákvæðan skólabrag. Jákvæður skólabragur hefur hvetjandi áhrif á nám og líðan barna í skólum landsins og stuðlar að bættu samstarfi milli skóla og foreldra. Þó geta ekki allir foreldrar tekið þátt í foreldrasamstarfi en þrátt fyrir það hefur jákvæður skólabragur og samvinna foreldra í bekkjardeildum áhrif á alla nemendur og hefur ótvíræð áhrif á námsárangur og að auki óumdeilt forvarnargildi þegar fram í sækir. Öflugt foreldrasamstarf skapar hefðir sem skila sér í bættu samfélagi og betri uppeldisskilyrðum fyrir börn og ungmenni. Fjölmargar rannsóknir styðja þetta og benda til þess að gott samstarf milli heimila og skóla stuðli að betri líðan og námsárangri barna, auknu sjálfsöryggi og jákvæðara viðhorfi. Virkir foreldrar skapa betri skóla.

Af hverju Foreldraverðlaun?

Einn tilgangur Foreldraverðlaunanna er að koma á framfæri verðugum verkefnum sem aðrir geta tekið upp og aðlagað að sínu nærsamfélagi en fjölmörg dæmi eru um verkefni sem skólar og foreldrar hafa unnið að og sniðið að eigin samfélagi. Til gamans má geta að Foreldrahandbók Heimilis og skóla, sem mörg foreldrafélög á landinu vinna eftir, er dæmi um verkefni sem hlaut Foreldraverðlaunin á sínum tíma. Allir geta tilnefnt til Foreldraverðlauna, hvar sem er á landinu. Einnig er hægt að tilnefna Dugnaðarfork Heimilis og skóla en þá er verðlaunaður einstaklingur sem með starfi sínu hefur skarað fram úr og stuðlað að bættu samstarfi heimila og skóla.

Jákvæður skólabragur

Hvernig skapast hefðir í skólasamfélaginu og hvernig er þeim viðhaldið? Sú samfélagsvinna sem foreldrar leggja til er auðlind sem vert er að veita eftirtekt. Nýir foreldrar koma inn í skólasamfélagið og halda áfram verkefnum sem unnið hefur verið að og skapað hafa hefðir. Foreldrar eru eins og órofa keðja sem viðheldur hefðum sem eiga þátt í að móta jákvæðan skólabrag sem er mikilvægur í öllu skólastarfi. Lítum til okkar skólasamfélags og gefum því gaum hvort þar sé unnið að verkefnum sem vert er að tilnefna.

Hægt er að skila inn tilnefningum til Foreldraverðlauna og Dugnaðarforks Heimilis og skóla á heimasíðu samtakanna, www.heimiliogskoli.is, fram til 6. maí nk.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×