Innlent

Virðist hafa skotið flugeldum inn í hóp fólks við Hallgrímskirkju

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Þeir sem kunna að hafa upplýsingar um atvikið, til dæmis hver það var sem skaut umræddum flugeldum, er beðinn um að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu.
Þeir sem kunna að hafa upplýsingar um atvikið, til dæmis hver það var sem skaut umræddum flugeldum, er beðinn um að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Egill Aðalsteinsson
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að atviki sem átti sér stað á nýársnótt, rétt eftir miðnætti. Svo virðist sem að einstaklingur hafi vísvitandi skotið flugeldum inn í hóp manna sem voru staddir við Hallgrímskirkju.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að fimm ferðamenn hafi verið staddir við kirkjuna, en flugeldurinn virðist hafa sprungið í hópnum með þeim afleiðingum að einn ferðamannanna fékk brunasár, meðal annars í andliti.

Þeir sem kunna að hafa upplýsingar um atvikið, til dæmis hver það var sem skaut umræddum flugeldum, er beðinn um að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu, gegnum einkaskilaboð á Facebook-síðu embættisins, í símann 444-1000 eða í netfangið jon.orn@lrh.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×