Sport

Vinur Schumachers: Hann er í hjólastól og getur ekki tjáð sig

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Einn lækna Michaels Schumachers segir það muni taka eitt til þrjú ár fyrir hann að ná einhverjum alvöru bata.
Einn lækna Michaels Schumachers segir það muni taka eitt til þrjú ár fyrir hann að ná einhverjum alvöru bata. vísir/getty
Philippe Streiff, fyrrverandi ökuþór í Formúlu 1 og vinur Michaels Schumachers, segir hann vera lamaðann, glíma við minnisleysi og eiga erfitt með að tjá sig.

Hinn 45 ára gamli Schumacher lenti í alvarlegu skíðaslysi í desember í fyrra eins og flestir vita og var lengi í dái á sjúkrahúsi í Frakklandi.

Hann var fluttur heim til sín í september þar sem Streiff hitti hann, en sjálfur er Streiff í hjólastól.

„Honum fer fram en er alfarið háður öðrum. Þetta er mjög erfitt. Eins og ég er hann lamaður í hjólastól. Hann glímir við minnisleysi og á erfitt með að tjá sig, sagði Streiff í viðtali við franska útvarpsstöð.

Talskona Schumachers sagði eftir viðtalið að ummæli Streiffs væru skoðanir hans.

Sjöfaldi heimsmeistarinn verður mörg ár að ná sér, að sögn Jean-Francois Payen, eins læknanna sem séð hefur um Schumacher.

„Ég hef tekið eftir framförum en við verðum að gefa honum tíma. Eins og með aðra sjúklinga erum við að tala um eitt til þrjú ár. Fólk þarf að vera þolinmótt.


Tengdar fréttir

Endurhæfing Schumacher færð á heimili hans

Talskona Michael Schumacher staðfesti í dag að Schumacher hefði verið fluttur af spítalanum í Lausanne á heimili sitt þar sem endurhæfingin mun halda áfram.

Myndavélin á hjálmi Schumacher gerði mestan skaða

Nýjustu fréttirnar af formúlugoðsögninni Michael Schumacher eru þær að hinn 45 ára gamli Þjóðverji sé enn að vakna úr dáinu því að það ferli er allt mjög hægt. Þetta er haft eftir fimmtán ára syni hans Mick. Það er einnig komið í ljós að það var myndavélin á hjálmi hans sem orsakaði mesta skaðann.

Góðar fréttir af Michael Schumacher

Jean Todt, forseti FIA, Alþjóðasambands atvinnuökumanna, færði heiminum góðar fréttir af þýsku formúlugoðsögninni Michael Schumacher sem er allur að koma til.

Enn reynir á Schumacher-fjölskylduna

Á meðan formúlugoðsögnin Michael Schumacher er í endurhæfingu eftir höfuðhöggið sem hann varð fyrir í frönsku Ölpunum í lok síðasta árs þá stendur yngri bróðir hans í erfiðum skilnaði. Það reynir því mikið á Schumacher-fjölskylduna þessi misserin.

Ekki rétt haft eftir einum besta vini Schumacher

Ummæli Jean Todt um ástand Michael Schumacher fóru eins og eldur um sinu um veraldarvefinn í gær en nú er komið í ljós að erlendu miðlarnir höfðu ekki rétt eftir einum besta vini formúlukappans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×