Innlent

Vinstrimiðjustjórn er líklegust

Sveinn Arnarsson skrifar
Stjórnarandstaðan í þinghúsinu í kjölfar breytinga á ríkisstjórninni í vor.
Stjórnarandstaðan í þinghúsinu í kjölfar breytinga á ríkisstjórninni í vor. vísir/ernir
Samsteypustjórn núverandi minnihlutaflokka á Alþingi er líklegasta stjórnarmynstrið í kortunum nú tíu dögum fyrir kjördag. Hafna þeir samstarfi við núverandi stjórnarmeirihluta og viðræður eru farnar af stað milli flokka um samstarfsfleti.

Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, sagðist í Facebook-færslu í gærkvöld Viðreisn tilbúna í viðræður eftir kosningar. „Lykilatriði er að fá umboð fólksins og finna sameiginlega snertifleti við aðra flokka, en þá ráða málefnin för,“ skrifaði Benedikt. Augljóst væri að Viðreisn blási „ekki lífi í ríkisstjórn sem kjósendur hafa fellt“. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur sagt leitt ef Viðreisn vilji að því leyti vinstristjórn í landinu.

„Fundurinn var mjög góður þó hann hafi aðeins verið tæpur klukkutími. Þar ræddum við saman um þessa fimm meginpunkta Pírata. Einnig ræddum við áherslur okkar Samfylkingarfólks í þessum kosningum. Það var góður andi á fundinum og það getur vel verið að við hittumst aftur fyrir kosningar og þá í stærri hópi,“ segir Oddný Harðardóttir, formaður Samfylkingarinnar, um fund hennar og Pírata í gær.

Oddný segir einnig að stjórnarsamstarf við Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn sé ekki í myndinni.

Smári McCarthy, oddviti Pírata í Suðurkjördæmi, segir lítinn ágreining milli Samfylkingar og Pírata í stórum málum og því einsýnt að flokkarnir haldi áfram að tala saman.

„Þetta var mjög góður fundur. Það var ekki að merkja mikinn áherslumun í stóra samhenginu. Hins vegar er ekki hægt að segja með vissu hvernig þetta fer fyrr en á fimmtudaginn í næstu viku,“ segir Smári. „Það er ekki búið að tímasetja næstu fundi en þeir verða vonandi haldnir sem fyrst.“

Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar.vísir/ernir
Björt Ólafsdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar, sagði á mánudaginn útspil Pírata dæmi um gamaldags klækjastjórnmál og til þess fallið að stýra atburðarásinni.

Óttarr Proppé, formaður BF, segir hins vegar spjall milli stjórnarandstöðunnar núna aðeins vera framhald á því samtali sem hafi átt sér stað allt kjörtímabilið.

„Við höfum unnið náið saman og flutt sameiginlegar breytingartillögur í fjárlagavinnu svo dæmi séu tekin og því er þetta rökrétt framhald,“ segir Óttarr. Meirihluti margra flokka sé ekki erfitt verkefni.

„Ég get ekki séð að það sé eitthvað að því að vera með marga flokka. Núna eru tveir flokkar í ríkisstjórn og þeir eru að gefast upp hvor á öðrum,“ segir Óttarr Proppé.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir

Eru ekki í stjórnarmyndunarviðræðum

Fyrirsögninni á fundinum hefur nú verið breytt á vefsíðu Pírata en nú er fundurinn kallaður „Píratar boða til formlegra viðræðna um samstarf“.

Vilja sameiginlegan fund með Pírötum

Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, sendir Pírötum þau skilaboð að ef þeir vilji samræður stjórnarandstöðu um nýja ríkisstjórn sé eðlilegast að allir flokkarnir hittist í sameiningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×