Innlent

Vinnumálastofnun auglýsir sumarstörf fyrir 365 námsmenn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra
Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra vísir/Vilhelm
Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur ákveðið í samræmi við tillögu Vinnumálastofnunar, að verja um 150 milljónum króna úr Atvinnuleysistryggingasjóði til að standa straum af  átaksverkefni til að skapa störf fyrir námsmenn í sumar hjá opinberum stofnunum og sveitarfélögum,  með líkum hætti og hefur verið gert sl. fimm sumur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vinnumálastofnun sem mun sem fyrr stýra átakinu.  

Framlag Atvinnuleysistryggingasjóðs nemur nú að hámarki grunnfjárhæð atvinnuleysisbóta (+ 8% framlags í lífeyrissjóð) fyrir hvert starf samtals 198.923 krónur pr. mánuð en ráðningartíminn er tveir mánuðir.

Vinnumálastofnun mun á næstu dögum senda bréf til  forráðamanna  stofnana ríkisins og sveitarfélaga þar sem þeir verða hvattir til að hefja undirbúning verkefnisins. Vonir standa til að með átakinu verði til 365  störf í sumar fyrir námsmenn sem skiptast á milli opinberra stofnanna og sveitarfélaga, 230 hjá opinberum stofunum og 135 hjá sveitarfélögum.

Ráðgert  er til að undirbúningur verkefnisins verði ekki langur þannig að unnt verði að auglýsa störfin í lok apríl eða byrjun maí.  Störfin verða auglýst á heimasíðu Vinnumálastofnunar og með auglýsingu í dagblöðum. 

Skilyrði fyrir ráðningu er að námsmenn séu að koma úr námi og að þeir séu skráðir í nám að hausti (séu á milli anna) og verði 18 ára á árinu.     




Fleiri fréttir

Sjá meira


×