Innlent

Vinnslustöðin undirbýr viðbrögð við flóði af völdum Kötlugoss

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Möguleiki er á því að hlaupvatn úr Kötlu geti myndað flóðbylgju sem skylli á Vestmannaeyjum. Vinnslustöðin hélt viðbragðsfund með stjórnendum og skipstjórum af því tilefni.
Möguleiki er á því að hlaupvatn úr Kötlu geti myndað flóðbylgju sem skylli á Vestmannaeyjum. Vinnslustöðin hélt viðbragðsfund með stjórnendum og skipstjórum af því tilefni. MYND/ÍSLEIFUR ARNAR VIGNISSON
Stjórnendur Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum (VSV) hafa nýtt tímann á meðan sjómannaverkfallið stendur yfir til að ræða viðbúnað og öryggismál vegna Kötlugoss.

Í liðinni viku var haldinn fundur stjórnenda og skipstjóra með vísindamönnum Jarðvísindastofnunar til að fara yfir mögulegar afleiðingar Kötlugoss. Raunveruleg hætta er fyrir hendi að hlaupvatn frá gosi geti komið af stað flóðbylgu sem myndi ná landi í Eyjum.

Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson
„Svona hlaup eru ekki algeng en við viljum undirbúa okkur í framkvæmd og vinnubrögðum ef þetta kemur upp,“ segir Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri VSV. „Við höldum brunaæfingu árlega og þá er upplagt að gera þetta í leiðinni.“

Að fundi loknum lágu fyrir drög að viðbragðsáætlun fyrir fólk í landvinnslu og viðbragðsáætlun gagnvart skipum. „Allir skipstjórarnir voru á fundinum og þekkja sitt hlutverk,“ segir Sigurgeir. Mannvirki VSV eru við hafnarsvæðið sem færi að stærstum hluta á kaf í slíkum hamförum. „Þar eru allar okkar byggingar og allt okkar fólk. Þetta snýst um öryggi þess, að koma því upp í bæ og úr hættu.“

Frekari áætlanir eru í vinnslu fyrir bæinn hjá almannavörnum. „Þetta var fyrsta yfirferð. Við munum kíkja á þetta aftur þegar jarðvísindamenn og almannavarnir hafa lagt upp sín plön. Þá munum við samræma okkur,“ segir Sigurgeir Orri. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×