Innlent

Vinnslustöðin hefur stefnt fjármálaráðherra upp á hálfan milljarð

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Vinnslustöðin hf. í Vestmannaeyjum hefur stefnt fjármálaráðherra upp á hálfan milljarð.
Vinnslustöðin hf. í Vestmannaeyjum hefur stefnt fjármálaráðherra upp á hálfan milljarð.
Vinnslustöðin hf. í Vestmannaeyjum hefur stefnt fjármálaráðherra fyrir hönd ríkisins og krefst þess að fá endurgreitt sérstakt veiðigjald sem lagt var á sjávarútvegsfyrirtæki á fiskveiðiárinu 2012-2013, alls um 516 milljónir króna.

Í tilkynningu frá Vinnslustöðinni kemur fram að ráðamenn fyrirtækisins uni almennum veiðigjöldum sem nam tæpum 200 milljónum króna.

Málssóknin tekur því einungis til sérstaka veiðigjaldsins. Ragnar H. Hall hæstaréttarlögmaður flytur málið fyrir hönd Vinnslustöðvarinnar og hefur stefnan þegar verið birt ríkislögmanni fyrir hönd fjármálaráðherra. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur 27. maí.

Í tilkynningunni frá Vinnslustöðinni segir að veiðigjaldið sé „fordæmalaust mál í skattasögu hér á landi.“ Einnig er sagt að veiðigjaldið stangist á við „ófrávíkjanleg ákvæði í Stjórnarskrá Íslands“

„Vinnslustöðin telur að sérstaka veiðigjaldið sé í reynd eignarskattur sem lagður er á veiðiheimildir sem varðar eru af eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar. Gjaldstofninn, svokölluð renta, sé hins vegar ekki tengdur ætluðu verðmæti veiðiheimildanna, heldur sé gjaldið fyrir fiskveiðiárið 2012/2013 reiknað út frá rekstrarniðurstöðum ársins 2010. Þetta þýði í raun að verið sé að skattleggja rekstur fyrirtækisins afturvirkt, sem er óheimilt samkvæmt 77. grein stjórnarskrárinnar,“segir í tilkynningunni. Einnig kemur þar fram að ráðamenn Vinnslustöðvarinnar telji veiðigjaldið jafngilda eignaupptöku.

„Með sérstöku veiðigjaldi er mjög hátt hlutfall af rekstrarafkomu Vinnslustöðvarinnar flutt í ríkissjóð. Engu er skeytt um áhrif þess á rekstur fyrirtækisins, fjárfestingargetu þess o.s.frv.

Skatthlutfallið er svo hátt að það felur í reynd í sér upptöku eigna, sem fer í bága við ákvæði stjórnarskrárinnar að mati fyrirtækisins.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×