Viðskipti innlent

Vinnslustöðin: Draga framboð sín til baka

Atli Ísleifsson skrifar
Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum gerir út níu skip til uppsjávar-, tog- og netaveiða.
Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum gerir út níu skip til uppsjávar-, tog- og netaveiða. vísir/stefán
Guðmundur Kristjánsson og Hjálmar Kristjánsson hafa ákveðið að draga framboð sín til stjórnarsetu í Vinnslustöðinni til baka þar sem þeir telji boðaðan hluthafafund sem á að fara fram í dag ólöglegan.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá þeim Guðmundi og Hjálmari.

„Á aðalfundi Vinnslustöðvarinnar hf. í Vestmannaeyjum þann 6. júlí sl. voru undirritaðir kosnir í stjórn og varastjórn félagsins. Þegar talningu var lokið líkaði meirihluta hluthafa félagsins ekki niðurstaða kosninganna. Arnar Sigurmundsson fundarstjóri, sem er stjórnarmaður í Landssamtökum lífeyrissjóða og tengist hópi meirihluta hluthafa Vinnslustöðvarinnar sem Haraldur Gíslason fer fyrir, ákvað í samráði við þessa örfáu hluthafa að kosning til stjórnar væri ógild og kosið skyldi aftur. Þessum vinnubrögðum var mótmælt tafarlaust á aðalfundinum. Þrátt fyrir mótmæli og bókanir fundarmanna ákvað fundarstjóri að kjósa aftur. Sú stjórn sem var kosin hefur ekki tekið til starfa. Málið er nú hjá hlutafélagaskrá RSK sem hefur ekki enn kveðið upp úrskurð sinn. Við höfum rétt fram sáttarhönd til meirihlutans, svo friður gæti skapast um félagið, en því hefur verið hafnað.

Þrátt fyrir allt þetta hefur verið boðað til nýs hluthafafundar í Vinnslustöðinni hf. síðar í dag þar sem á að kjósa þriðju stjórnina á þessu ári. Við teljum þetta vera ólöglega og grófa valdníðslu af hálfu meirihluta hluthafa og gróft brot á reglum hlutafélagalaga. Þykir okkur einnig miður að sjá Lífeyrissjóð Vestmannaeyja, sem lengst af var hlutlaus um málefni Vinnslustöðvarinnar, taka þátt í aðför meirihlutans að okkur, ásamt stjórnarmanni í Landssamtökum lífeyrissjóða. Vakna þá spurningar um hvort lítið sé að marka baráttu lífeyrissjóðanna fyrir bættum stjórnarháttum í hlutafélögum.

Við tilkynnum hér með að við höfum ákveðið að draga framboð okkar til stjórnarsetu í Vinnslustöðinni hf.  til baka þar sem við teljum boðaðan hluthafafund sem fara á fram í dag ólöglegan,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×