Viðskipti innlent

Vinna til verðlauna fyrir samfélagmiðlaherferð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu.
Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu. visir/islandsstofa/gva
Landkynningarverkefnið Ísland – allt árið / Inspired by Iceland hefur unnið til Skifties verðlauna í flokknum nýstárleg notkun samfélagsmiðla fyrir markaðsherferðina Share the Secret.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsstofu. Í umsögn dómnefndar segir að verðlaunin séu m.a. veitt fyrir þá hugmynd að fá íslendinga til þess að deila einlægum sögum af áhugaverðum stöðum með ferðamönnum.

Markaðsherferðin Share the Secret er enn í gangi og verður miðpunktur í starfi Inspired by Iceland á þessu hausti.

Verðlaun eru veitt fyrir notkun samfélagsmiðla í ferðaþjónustu í 15 flokkum, en meðal þeirra sem einnig hlutu verðlaun eru TripAdvisor, Lonely Planet og Tourism Australia.

„Þetta er mikill heiður fyrir verkefnið og sýnir að í krafti samstarfs í ferðaþjónustu er vel er hægt að ná árangri á alþjóðlegum vettvangi. Það er ekki auðvelt að keppa við risa á borð við þá sem eru þarna tilnefndir og hafa úr mun meira fjármagn spila sem er á engan hátt sambærilegt við það sem fer í sameiginlega landkynningu fyrir Ísland í heild sinni,“ segir Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×