Lífið

Vinna Hrútar til verðlauna í Cannes í kvöld?

Atli Ísleifsson skrifar
Sigurður Sigurjónsson, Grímur Hákonarson og Theódór Júlíusson að stilla sér upp fyrir ljósmyndara áður en þeir héldu á rauða dregilinn.
Sigurður Sigurjónsson, Grímur Hákonarson og Theódór Júlíusson að stilla sér upp fyrir ljósmyndara áður en þeir héldu á rauða dregilinn. Mynd/Brynjar Snær
Úrslitin á kvikmyndahátíðinni í Cannes verða kunngjörð í kvöld og kemur þá í ljós hvort íslenska kvikmyndin Hrútar muni vinna til verðlauna í Un Certain Regard hluta keppninnar. Grímur Hákonarsonar er leikstjóri myndarinnar.

Hrútar fengu mjög góðar viðtökur þegar myndin var frumsýnd á frönsku kvikmyndahátíðinni fyrir um viku og risu áhorfendur meðal annars úr sætum og klöppuðu fyrir aðstandendum hennar í einar tíu mínútur að sýningu lokinni.

Etur kappi við átján aðrar myndir

Í tilkynningu segir að myndin hafi hlotið lofsamlega dóma í mörgum af stærstu og virtustu kvikmyndatímaritum heims – tímaritum á borð við Hollywood Reporter, Variety og Screen. Þá hafi hún fengið fimm stjörnur í tímaritinu The Upcoming.

Hrútar etja kappi við átján aðrar kvikmyndir um Un Certain Regard verðlaunin.

Ótrúlegar móttökur

Grímar Jónsson, framleiðandi myndarinnar, aðstandendur myndarinnar hafa fengið ótrúlegar móttökur í Cannes og frábæra dóma. „Við gætum eiginlega ekki beðið um meira. Við bíðum vissulega spenntir eftir verðlaunaafhendingunni í kvöld en hlökkum eiginlega meira til að frumsýna myndina heima.“

Hrútar verða frumsýnd hér á landi á miðvikudaginn kemur en fer í almenna sýningu á fimmtudaginn.

Önnur íslenska myndin sem keppir í flokknum

Hrútar er önnur íslenska kvikmyndin sem kemst í Un Certain Regard keppnina. Árið 1993 komst hin goðsagnakennda mynd Sódóma Reykjavík eftir Óskar Jónasson þangað. Það þykir mikill heiður fyrir unga og upprennandi leikstjóra að vera valinn í þennan flokk.

Kvikmyndin Stormviðri eftir Sólveigu Anspach var valin í Un Certain Regard árið 2003 en hún var frönsk framleiðsla og Dagur Kári Pétursson var valinn með dönsku myndina Voksne Mennsker árið 2005.

„Grímur Hákonarson leikstýrir og skrifar handritið að Hrútum. Aðalframleiðandi myndarinnar er Grímar Jónsson fyrir Netop Films og meðframleiðendur eru hin dönsku Ditte Milsted og Jacob Jarek fyrir Profile Pictures. Þá er Þórir Snær Sigurjónsson einn af framleiðendum myndarinnar. Framleiðslustjórn er í höndum Evu Sigurðardóttur. Með aðalhlutverk fara Sigurður Sigurjónsson og Theodór Júlíusson. Stjórn kvikmyndatöku er í höndum Norðmannsins Sturla Brandth Grøvlen og Kristján Loðmfjörð sér um klippingu myndarinnar. Tónlist myndarinnar er samin af Atla Örvarssyni og hljóðhönnun er í höndum Huldars Freys Arnarssonar og Björns Viktorssonar.

Myndin hefur einnig vakið athygli út fyrir kvikmyndaiðnaðinn því ritstjóri franska tímaritsins Pâtre et La chèvre, sem er tileinkað sauðfé, hefur sýnt myndinni mikinn áhuga,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir

Sögulegir Hrútar í Cannes

Kvikmyndahatíðin í Cannes er haldin 13 – 24 maí þetta árið og er þetta 68 skiptið sem þessi virta hátíð er haldin. Íslendingar settu mark sitt á hátíðina í ár en í fyrsta sinn í 22 ár var íslensk mynd í aðalprógrammi hátíðarinnar, myndin Hrútar eftir Grím Hákonarson.

Kindurnar með hreinum ólíkindum

Hrútar, kvikmynd Gríms Hákonarsonar, umturnaði Bárðardal á meðan á tökum stóð en bændur og kvikmyndagerðarmenn lögðust á eitt til að gera myndina að veruleika.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×