Innlent

Vinna hafin við að fjarlægja dekkjakurl af fótboltavöllum í Hafnarfirði

Birgir Olgeirsson skrifar
Í dag skrifaðu Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri og Páll Halldórsson, framkvæmdastjóri Metatrons undir samning um verkefnið.
Í dag skrifaðu Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri og Páll Halldórsson, framkvæmdastjóri Metatrons undir samning um verkefnið.
Vinna við að fjarlægja gamalt dekkjakurl af fótboltavöllum við grunnskóla Hafnarfjarðarbæjar hófst í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sveitarfélaginu en bæjarráð Hafnarfjarðar ákvað síðasta vor að skipta út dekkjakurli á fótboltavöllum við fjóra af grunnskólum bæjarins og að setja nýtt gervigras án allra fylliefna við þrjá skóla.

Var verkið boðið út og bauð fyrirtækið Metratron, sem er með aðalstarfsstöð sína í Hafnarfirði, lægst í verkið. Bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Haraldur. L Haraldsson, og framkvæmdastjóri Metatrons, Páll Halldórsson, skrifuðu undir samning um verkefnið í dag.

Strax í dag hófst svo vinna við Hraunavallaskóla við að fjarlægja gamla dekkjakurlið af fótboltavellinum við skólann. Er stefnt að því að allt dekkjakurl verði farið af skólalóðum áður en skólar hefjast í haust.

Er nýja efnið sem sett verður í staðinn sagt vottað gúmmíefni sem uppfyllir öll viðmið. Vinna við þá þrjá velli, Hvaleyrarskóla, Setbergsskóla og Öldutúnsskóla, þar sem skipt verður alveg um grasmottu, hefst í lok ágúst og á að ljúka í síðasta lagi í október.

Verða þessir vellir án gúmmíuppfylliefna en í tilkynningu frá bænum kemur fram að sett verður gúmmímotta undir gervigrasið sem á að tryggja betri endingu, stöðugleika og gæði. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×