Golf

Vindurinn gerði kylfingum lífið leitt í Texas

Mickelson höndlaði vindinn vel í dag.
Mickelson höndlaði vindinn vel í dag. Getty
Bestu kylfingar PGA-mótaraðarinnar eru sjaldan sáttir með hring upp á slétt par en þeim sem tókst að halda sér réttu megin við parið á fyrsta hring á TPC San Antonio vellinum, þar sem Valero Texas Open fer fram,  eru allir í góðum málum.

Mikill vindur gerði þátttakendum erfitt fyrir en Charley Hoffman höndlaði aðstæður best og kom inn á 67 höggum eða fimm undir pari.

Ástralinn Aaron Baddeley kemur á eftir honum eftir hring upp á 68 högg eða fjóra undir pari en Max Homa kemur þar á eftir á þremur undir.

Phil Mickelson er meðal þátttakenda um helgina en hann byrjaði vel þrátt fyrir að hafa brotið 8-járnið sitt í brautarglompu á 12. holu. Hann er jafn í öðru sæti á tveimur höggum undir pari en aðeins 12 kylfingar náðu að leika undir pari í vindinum á fyrsta hring.

Annar hringur í San Antonio verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni frá klukkan 19:00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×