Lífið

Viltu vinna miða á Josh Blue?

Stefán Árni Pálsson skrifar
Josh Blue.
Josh Blue. vísir
Grínistinn Josh Blue skemmtir hér á landi föstudagskvöldið en Lífið ætlar að gefa níu heppnum lesendum tvo miða.

Hugleikur Dagsson og Jóhannes Ingi hita upp fyrir Josh en Jóhannes vann Fyndnasti Nemi HÍ uppistands-keppnina fyrr á árinu.

Josh Blue sigraði Last Comic Standing á NBC árið 2006 og hefur síðan þá ferðast um heiminn með uppistand sitt. Uppistandið fer fram í Háskólabíói á föstudagskvöld og hefst það klukkan átta.

Josh Blue er fatlaður grínisti og gerir óspart grín að fötlun sinni, viðbrögðum samfélagsins við fötlun sinni og annarra og brýtur þannig niður staðalmyndir um fatlað fólk.

Til að taka þátt í leiknum er nauðsynlegt að like-a Facebooksíðu Lífsins og kvitta hér að neðan. 

Níu heppnir lesendur Lífsins fá tvo miða á uppistandið með Josh Blue á föstudagskvöldið. Til að vera með í leiknum þarf að like-a Facebook-síðu Lífsins og kvitta hér að neðan.

Posted by Lífið á Visir.is on 2. september 2015





Fleiri fréttir

Sjá meira


×