Fótbolti

Viltu eignast gullmedalíuna hans Marcelo?

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Marcelona er gjafmildur.
Marcelona er gjafmildur. mynd/facebook
Ef þú vilt eignast gullverðlaunapening frá úrslitaleik Meistaradeildarinnar og þannig eiga fleiri Meistaradeildargull en Zlatan Ibrahimovic geturðu tekið þátt í leik á Facebook-síðu Marcelo.

Brasilíski vinstri bakvörðurinn, sem vann Meistaradeildina með Real Madrid í annað inn á laugardaginn, ætlar nefnilega að gefa gullmedalíuna sína og skóna sem hann notaði í úrslitaleiknum.

„Ekkert er betra en tilfinningin að vera í fyrsta sæti og þessari tilfinningu vil ég deila með ykkur aðdáendum mínum,“ segir Marcelo og biður þá sem vilja eignast medalíuna og skóna að segja sér sigursögu.

Marcelo á aðra gullmedalíu til því hann varð einnig Evrópumeistari með Real Madrid fyrir tveimur árum þegar liðið vann Atlético Madrid í framlengdum leik, 4-1. Brassinn skoraði síðasta markið í þeim leik.

Real vann Atlético í annað sinn á þremur árum í úrslitaleik í Mílanó síðastliðinn laugardag en að þessu sinni í vítaspyrnukeppni. Marcelo tók eitt af vítunum og skoraði örugglega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×