Skoðun

Villuráfandi hagfræðingur

Ingimar Karl Helgason skrifar
Það getur komið fyrir ágætasta fólk að fara með rangfærslur eða éta þær upp eftir öðrum. Svo eru dæmi um að fólk getur spennt bogann svo hátt að hann brestur. Hvort tveggja hendir Bolla Héðinsson hagfræðing.

Hann ber Vinstri græn þungum sökum ásamt Tortólaflokkunum í grein í Fréttablaðinu og á Vísi. Þar fjallar hann um nýjan búnaðarsamning og meintan skilyrðislausan stuðning VG við málið.

Gróðureyðing í boði VG, Sjálfstæðis og Framsóknar kallast skrifið. Þetta eru stór orð. Þeim hljóta að fylgja rök.

Þau er ekki að finna í greininni. Undir þessari stóru fyrirsögn stendur aðeins þessi stutta efnisgrein:

„Meðal þess sem sauðfjárhluti landbúnaðarsamningsins hvetur til er aukin gróðureyðing á viðkvæmum svæðum. Prófessor við Landbúnaðarháskólann hefur varað við þessu í blaðagreinum án þess að því hafi verið mótmælt.“

Í stuttu máli: Þetta stenst ekki skoðun. Hagfræðingurinn er á algjörum villigötum.

Nánar: Grein Bolla ber með sér að hann hefur ekki haft fyrir því að kynna sér efnið. Ef menn vilja láta taka mark á sér, þá er lágmark að þeir færi sannfærandi rök fyrir stóryrðum.

Ég leyfi mér að grípa niður í greinargerð Landssamtaka sauðfjárbænda við umrætt mál:

„Engin haldbær rök hníga að því að þær kerfisbreytingar sem í nýja samningnum felast leiði til fjölgunar fjár. Framleiðsla á lambakjöti hefur verið frjáls og án kvóta í rúm 20 ár en fé fækkað. Ótti við offramleiðslu eða aukið beitarálag er beinlínis órökréttur og ástæðulaus miðað við efni samningsins.

Áfram er stutt er við siðlega búskaparhætti í nýja samningum, m.a. með því að styrkja verulega gæðastýringu í sauðfjárrækt sem hefur verið eitt öflugasta sjálfbærniverkefni hér á landi frá 2003. Komið verður á sívirku rannsóknar-, mats- og vöktunarkerfi á landi til að styrkja vísindalegan grundvöll skynsamlegrar beitarstýringar.“

Við þetta má bæta að sauðfjárbændur hafa farið fremstir í flokki við uppgræðslu og landbætur. Þetta hafa þeir gert í samstarfi við Landgræðsluna í verkefninu Bændur græða landið og ekki síður í tengslum við landbótaáætlanir sem eru lykilþáttur í gæðastýringu sauðfjárræktar. Varlega áætlað hafa bændur grætt upp a.m.k. 45 þúsund hektara lands undanfarin ár í tengslum við þessi verkefni.

Það er reyndar svo að undanfarin ár hafa bændur grætt upp land með mun meiri hraða en sem nemur hraða gróðureyðingar og ofnýtingar liðinna alda.

Grein hagfræðingsins er annars minnst um þetta. Inntak hennar er einhvers konar útlistun á hans eigin hugmyndum um landbúnað og fýla út í VG og rekstur á samfélagslegum grunni. Fyrirsögnin „Lofsöngur til frjálshyggjunnar“ hefði sennilega lýst henni betur.








Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×