André Villas-Boas entist bara í átta mánuði hjá Chelsea.
MYND/NORDIC PHOTOS/GETTY
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar:
Enskir fréttamiðlar segja frá að André Villas-Boas verði kynntur sem nýr stjóri Tottenham á mánudaginn og að fyrstu kaup hans verði íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson. Villas-Boas og forráðamenn Tottenham munu ganga frá þriggja ára samningi um helgina.
Villas-Boas samþykkti að taka við Tottenham-liðinu fyrr í þessari viku en það er ekki hægt að ganga frá samningnum fyrr en 1. júlí vegna lagalegra ástæðna.
Villas-Boas var í fyrstu annar á óskalistanum hjá Spurs á eftir Frakkanum Laurent Blanc en Portúgalinn heillaði stjórnarformanninn Daniel Levy upp úr skónum á fundum þeirra í júní.
Villas-Boas vill fá þá Gylfi Þór Sigurðsson og Jan Vertonghen til Tottenham og það er búist við því að Gylfi verði orðinn leikmaður Tottenham á mánudaginn. Gylfi á eftir að fara í gegnum læknisskoðun og ganga frá persónulegum kjörum sínum,
Tottenham hefur náð samkomulagi um að kaupa Gylfa á 8 milljónir punda frá þýska félaginu Hoffenheim en félagið hafði betur í baráttunni við Liverpool og Swansea.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool, er með 21 árs örfættan vængmann frá Gana í sigtinu en Sky Sports segir frá í dag að Liverpool hafi gert Porto tilboð í leikmanninn.
Meira
Sergio Agüero, framherji Manchester City, hefur eytt öllum vangaveltum um framtíð sína hjá félaginu með því að framlengja samning sinn um eitt ár.
Meira
Tottenham gerði í nótt markalaust jafntefli við landslið Jamaíku á Bahama-eyjunum. Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Tottenham og spilaði allan leikinn.
Meira
"Ég er svo ánægður með að hafa skrifað undir nýjan eins árs samning fyrir þetta frábæra félag,“ sagði Rio Ferdinand, varnarmaður Manchester United.
Meira
Það hafa orðið miklar sviptingar á knattspyrnustjóramarkaðnum í ensku úrvalsdeildinni á síðustu dögum og þrír af þeim stjórum sem hafa verið lengst með sín félög leita nú á ný mið en það eru þeir Sir ...
Meira
Hvers skoraði flest sjálfsmörk? Hver skaut oftast framhjá? Hvaða markvörður varði flest skot? Hver braut oftast af sér? Það er kominn tími til að gera upp 21. leiktímabilið í ensku úrvalsdeildinni í k...
Meira
Alls small boltinn 265 sinnum í stönginni eða þverslánni í leikjunum 380 í ensku úrvasdeildinni í vetur. En hverjir ætli hefðu orðið meistarar hefði boltinn farið inn en ekki út?
Meira
Enskir fjölmiðlar fullyrða að stutt sé í að Liverpool gangi frá samningum við varnarmanninn Kolo Toure sem er að verða samningslaus hjá Manchester City.
Meira
Miðjumaðurinn snjalli, Michael Carrick, segir að leikmenn Manchester United standi við bakið á Skotanum David Moyes sem mun taka við liðinu í sumar. Liðið var Englandsmeistari í ár undir stjórn Sir Al...
Meira