Fótbolti

Villarreal valtaði yfir Atletico

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Villarreal sækir að marki Atletico í kvöld.
Villarreal sækir að marki Atletico í kvöld. vísir/getty
Atletico Madrid er að gefa eftir í spænsku úrvalsdeildinni og í kvöld mátti liðið sætta sig við stórt tap, 3-0, gegn Villarreal.

Atletico var í fimmta sæti fyrir leikinn með 25 stig en Villarreal í sjötta með 23 stig. Villarreal komst alla leið upp í fjórða sæti með sigrinum.

Trigueros kom Villarreal yfir á 28. mínútu og Jonathan dos Santos bætti öðru marki við sjö mínútum fyrir leikhlé.

Það var svo Roberto Soriano sem skoraði síðasta mark leiksins í uppbótartíma. Stórsigur og fjórða sætið staðreynd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×