Erlent

Vill stunda kynlíf með 100 þúsund karlmönnum

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Lisewska ætlar að sænga hjá 100 þúsund karlmönnum.
Lisewska ætlar að sænga hjá 100 þúsund karlmönnum.
Ania Lisewska, 21 árs gömul stúlka frá Varsjá, hefur sett sér það markmið að ferðast til allra borga í heiminum og stunda kynlíf með að minnsta kosti 100 þúsund karlmönnum. Vill hún hafa mök við hvern og einn í 20 mínútur að lágmarki.

„Ég vil karlmenn frá Póllandi, Evrópu og alls staðar að úr heiminum. Ég elska karlmenn, kynlíf og að skemmta mér,“ hafði Austrian Times eftir Lisewsku í júní. „Kynlíf er ennþá feimnismál í Póllandi og sá sem vill fullnægja kynlífslöngunum sínum er álitinn úrkynjaður, hóra eða geðveikur.“

Lisewska hóf hið undarlega verkefni í Varsjá í síðasta mánuði og ætlar hún að ferðast um heimalandið áður en hún fer til annarra landa. Hún hefur nú þegar stundað kynlíf með 284 mönnum og fylgjast rúmlega 11 þúsund manns með henni á Facebook.

Unnusti Lisewsku segist ekkert sérlega ánægður með áhugamál hennar en segir í samtali við vefsíðuna Fakt að hann hafi ekkert um það að segja og hafi því þurft að sætta sig við það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×