Innlent

Vill skoða að takmarka fjölda flugfélaga til Íslands

Gunnar Atli Gunnarsson skrifar
Grímur Sæmundsen, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar.
Grímur Sæmundsen, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar. Vísir/Anton
Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar vill að skoðað verði hvort hægt sé að takmarka þann fjölda flugfélaga sem fljúga til Íslands. Með því væri hægt að bregðast við fjölgun ferðamanna undanfarin ár sem stefnir að hans mati í óefni.

Greiningardeild Íslandsbanka spáir því í nýrri skýrslu um ferðaþjónustuna að um 2,3 milljónir ferðamanna muni heimsækja Ísland á þessu ári sem nemur fjölgun um 30 prósent frá síðasta ári.

Síðastliðin ár hafa forsvarsmenn ferðaþjónustunnar frekar bent á tækifærin sem felast í þessari ævintýralegu fjölgun frekar en að þetta sé einhvers konar vandamál. Grímur Sæmundsen, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að nú sé hins vegar rétt að staldra við, enda stefni þessi mikli vöxtur í óefni.

„Ef að við færum að horfa á 30 prósent vöxt í fjölda ferðamanna ofan á 2,3 milljónir ferðamanna, þá verðum við komin í 3 milljónir ferðamanna á næsta ári. Ég held að við hljótum öll að sjá að það er eitthvað sem að miðað við stöðuna eins og hún er á vinnumarkaði, húsnæðismarkaði, vegakerfinu, hvað varðar félagslega sátt, álag á náttúru, að þá held ég að við værum nú komin í ógöngur ef að það yrði niðurstaðan,” segir Grímur.

Tryggja hóflega fjölgun á næstu árum

Hann segir að þessi fjölgun ferðamanna sé hvorki sjálfbær né heilbrigð til framtíðar. Hann vill að gripið verði til aðgerða til að tryggja hóflega fjölgun ferðamanna á næstu árum, í stað þeirra hömlulausu fjölgunar sem verið hefur síðustu ár.

„Meðal annars gæti það falist í því að skoða aðgangsstýringu með miklu markvissari hætti heldur en við höfum áður gert. Og þá kannski til að byrja með aðgangsstýringu hvað varðar eftirspurn erlendra flugfélaga eftir því að fá að fljúga til Íslands.”

Væri þá hægt að takmarka með einhverjum hætti þann fjölda flugfélaga sem fljúga hingað?

„Ég er bara að kasta þessu fram sem hugmynd og til að hefja umræðuna,” segir Grímur.

Þurfum að staldra við

Hann segir að fjöldi ferðamanna ráðist að stærstum hluta af framboði flugs til landsins.

„Og þegar að þú ert kominn með 10 flug á dag til London, og við erum að tala um að það er flogið til Íslands frá 90 áfangastöðum í sumar, að þá hlýtur þú að staldra við og fara að velta fyrir þér hvernig þú getur höndlað þessa eftirspurn,” segir Grímur.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×