Fótbolti

Vill sjá Birki Bjarnason í enska úrvalsdeildarliðinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hull City er komið upp í ensku úrvalsdeildina og þarf að styrkja sig fyrir átökin á komandi tímabili. Blaðamaður staðarblaðsins í Hull er búinn að finna fimm leikmenn sem honum finnst ættu að vera á innkaupalistum og við Íslendingar þekkjum einn þeirra mjög vel.

Hull City var bara eitt ár í ensku b-deildinni en komst aftur upp í gegnum umspilið eftir að hafa endaði í fjórða sætinu í deildarkeppninni.

Sammi Minion hjá Hull Daily Mail var að horfa á Evrópumótið í Frakklandi og sá þar fimm leikmenn sem myndu styrkja Hull City liðið á réttan hátt fyrir ensku úrvalsdeildina en fyrsti leikur liðsins er á móti Englandsmeisturum  Leicester City 13. ágúst. Minion skrifaði grein um þessa fimm leikmenn.

Leikmennirnir sem hann nefnir eru portúgalski hægri bakvörðurinn Cedric Soares, pólski framherjinn Arkadiusz Milik, portúgalski markvörðurinn Rui Patricio, velski miðjumaðurinn Joe Ledley og svo Birkir okkar Bjarnason.

Soares spilar með enska úrvalsdeildarliðinu Southampton, Milik er hjá hollenska félaginu Ajax, Patricio spilar í marki Sporting CP í Portúgal og Ledley er liðsmaður Crystal Palace.

Birkir Bjarnason er 28 ára gamall og er núverandi leikmaður svissnesku meistaranna í Basel. Blaðmaðuri Hull Daily Mail segir íslenska liðið hafa komið hvað mest á óvart á mótinu. Liðið vakti mikla athygli og Birkir er í hópi þeirra íslensku landsliðsmanna sem gætu verið komnir í nýtt félag fyrir haustið.

Blaðamaður Hull Daily Mail bendir á það að íslenska liðið hafi spilað góðan varnarleik á mótinu en verið jafnframt með skapandi miðju og þar hafi komið sterkir inn leikmenn eins og Gylfi Þór Sigurðsson og svo Birkir Bjarnason sem skoraði tvö mörk fyrir íslenska liðið á EM í Frakklandi.

Birkir er sagður vera kominn með reynslu af evrópskum fótbolta eftir bæði Evrópukeppni með Basel og íslenska landsliðinu og að íslenski leikstíllinn og ákveðni hans sjá til þess að Birkir muni örugglega ekki eiga í neinum vandræðum með að spila í hinni líkamlega krefjandi ensku úrvalsdeild.

Birkir er líka sagður tileinka sér rétta hugarfarið sem þarf til að ná árangri þótt að fáir hafi trú á þér og ætti að geta hjálpa Hull City að halda sér í ensku úrvalsdeildinni. Það er hægt að sjá alla greinina og þar með umfjöllunina um hina fjóra leikmennina með því að smella hér.


Tengdar fréttir

Roma með Birki undir smásjánni

Roma hefur áhuga á íslenska landsliðsmanninum Birki Bjarnasyni að því er fram kemur á vefnum gazzettaworld.com.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×