Viðskipti innlent

Vill sex mánaða frest til að stöðva mengun

Haraldur Guðmundsson skrifar
Umfang Umhverfisstofnunar í eftirliti gagnvart United Silicon er fordæmalaust.
Umfang Umhverfisstofnunar í eftirliti gagnvart United Silicon er fordæmalaust. vísir/vilhelm
Stjórnendur kísilvers United Silicon í Helguvík óska eftir sex mánaða fresti til nauðsynlegra úrbóta í mengunarmálum. Þeir harma að lyktarmengun hafi valdið íbúum Reykjanesbæjar óþægindum en segja hana mega rekja til tímabundinna vandamála og byrjunarörðugleika.

Þetta kemur fram í bréfi sem United Silicon sendi Umhverfisstofnun á þriðjudag og Fréttablaðið hefur undir höndum. Þar kynnir fyrirtækið áætlun um úrbætur í mengunarmálum og varðandi frávik frá starfsleyfi, eins og því að spilliefni eru geymd utandyra á malarlóð, sem leiddu til þess að stofnunin sendi því harðort bréf í síðasta mánuði. Var þar farið fram á tafarlausar úrbætur.

„Félagið telur á hinn bóginn einsýnt að félagið sjálft, með liðsinni sérfróðra aðila sem leitað hefur verið til, sé best til þess fallið að leysa þann vanda sem við er að etja,“ segir í bréfi United Silicon.

Sigrún Ágústsdóttir, sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun
Umhverfisstofnun sendi kísilverinu bréfið þann 21. febrúar og tilkynnti stjórnendum þess um áform um að ráðist yrði í verkfræðilega úttekt á hönnun og rekstri verksmiðjunnar. Ástæðu þess mætti rekja til tíðra mengunaróhappa og að svo gæti farið að stöðva þyrfti reksturinn tímabundið og framkvæma nauðsynlegar úrbætur. Umhverfisstofnun hefur borist vel á annað hundrað ábendinga um lyktarmengun og skráð fjölmörg frávik frá starfsleyfi.

„Við höfum ekki tekið afstöðu til bréfsins [frá United Silicon] og munum fara yfir það næstu daga,“ segir Sigrún Ágústsdóttir, sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun.

Samkvæmt bréfi Umhverfisstofnunar berast ábendingar um lyktarmengun iðulega eftir að slökkt hefur verið á eina ljósbogaofni verksmiðjunnar. Kristleifur Andrésson, stjórnandi öryggis- og umhverfismála United Silicon, svarar aðspurður að rekstur hennar hafi ekki gengið áfallalaust síðan fyrra bréfið barst fyrir rúmum tveimur vikum. Síðasta föstudag hafi þurft að slökkva á ofninum í um tvo daga.

„Reksturinn er búinn að ganga mjög vel fyrir utan eitt óhapp en nú erum við komnir á mjög góðan skrið aftur. Þá varð bilun í búnaði þegar öxull brotnaði í færibandi og það tók á annan sólarhring að fá varahluti og gera við,“ segir Kristleifur. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×