Vill samstarf allra flokka í bæjarstjórn Jón Hákon Halldórsson skrifar 2. febrúar 2012 22:58 Hjálmar Hjálmarsson segir að nýr meirihluti verði ekki starfhæfur.
Hjálmar Hjálmarsson, oddviti Næst Besta Flokksins í Kópavogi, býst ekki við því að meirihluti Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Lista Kópavogsbúa sé starfhæfur. Ómögulegt sé að mynda starfhæfan meirihluta. Hjálmar hvetur alla hlutaðeigandi, í yfirlýsingu sem hann sendi fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis, að kynna sér hugmynd Næst Besta Flokksins um samstarf allra flokka í bæjarstjórn. „Þar er gert ráð fyrir að framboðin skipti með sér verkum og deili ábyrgð á nefndarstjórnum og öðrum trúnaðarstörfum. Þá verði meirihlutafundir lagðir niður en í staðinn teknir upp vinnufundir oddvita allra flokka," segir Hjálmar. Hjálmar segir að þessi vinnubrögð sem hann boði séu alls ekki ný af nálinni. Til dæmis hafi allir flokkar unnið saman að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar þrjú ár í röð. Hjálmar segist ætla að standa við allar þær ákvarðanir sem hann hafi stutt hingað til. Nýlega hafi verið samþykkt af 7 bæjarfulltrúum fjárhagsáætlun fyrir árið 2012. Eftir henni muni hann vinna í grundvallaratriðum. Orðrétt segir Hjálmar þetta: Ég mun sem bæjarfulltrúi standa við allar þær ákvarðanir sem ég hef stutt hingað til. Nýlega var samþykkt af 7 bæjarfulltrúum fjárhagsáætlun fyrir árið 2012. Eftir henni mun ég vinna í grundvallaratriðum og reikna með því að hinir 6 bæjarfulltrúarnir sem greiddu henni atkvæði muni gera það einnig. Málefnasamningur gamla meirihlutans verður sá rammi sem ég mun vinna eftir sem og hingað til. Ég mun tala áfram fyrir þeim málefnum sem þar koma fram. Starfsemi hinna fjölmörgu stofnana Kópavogsbæjar gengur vel að því ég best þekki til. Leikskólar, grunnskólar, félagsþjónustan, rekstur sundlauga og íþróttamannvirkja, menningarstofnanir o.s.frv. allt er á góðu róli. Störf nefnda og ráða ganga prýðilega og hafa gert allt kjörtímabilið. Sjaldan kemur upp stór ágreiningur í nefndum og ráðum bæjarins en þar sitja fulltrúar kosnir af bæjarstjórninni frá öllum framboðum. Starfsmenn bæjarins halda sínu striki og vinna eftir fárhagsáætlun og takast á við þau verkefni sem upp koma af sömu kostgæfni og þeir hafa hingað til gert. Bæjarráð er enn að störfum og afgreiðir þau mál sem inn á þess borð kemur. Í raun er ekkert að í starfsemi og rekstri bæjarins sem vert er að hafa stórar áhyggjur af. Það er aðeins í efsta laginu, hjá hinum kjörnu fulltrúum, innan flokkana, sem ruglið, bullið og vitleysan hefur tekið völdin. Þessi staða er á okkar ábyrgð og það er okkar að leysa úr. Ég hvet alla bæjarfulltrúa, varafulltrúa, nefndarfólk og aðra sem starfa að þessum málum að kynna sér hugmynd NæstBestaFlokksins um samstarf allra flokka í bæjarstjórn. Þar er gert ráð fyrir að framboðin skipti með sér verkum og deili ábyrgð á nefndarstjórnum og öðrum trúnaðarstörfum. Þá verði meirihlutafundir lagðir niður en í staðinn teknir upp vinnufundir oddvita allra flokka. - Þessi vinnubrögð eru alls ekki ný af nálinni og vil ég minna á að allir flokkar unnu saman að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar þrjú ár í röð. Ég var kjörinn til þess að sitja í 11 manna bæjarstjórn og gegna þeim trúnaðarstörfum sem mér var falið af þeirri stjórn. Ég hef enga kosti aðra en vinna áfram með öllu þessu fólki út kjörtímabilið að því sameiginlega markmiði okkar allra, að vinna Kópavogsbæ eitthvert gagn.
Mest lesið „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Sjá meira