Innlent

Vill lóðir frá ríkinu undir íbúðir

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Umræddar lóðir
Umræddar lóðir
Borgarstjóri vill viðræður við ríkið um uppbyggingu á sex ríkislóðum í Reykjavík vestan Kringlumýrarbrautar. Telur borgarstjóri að á lóðunum mætti reisa um 800 íbúðir. Þetta kemur fram í bréfi sem borgarstjóri sendi Þorsteini Víglundssyni, félags- og húsnæðismálaráðherra, fyrr í mánuðinum.

„Við erum opin fyrir því hvort við leysum þær til okkar eða hvort ríkið gangist sjálft fyrir því að láta byggja á þeim eða að við gerum það einfaldlega í samstarfi. En með þessu bréfi vildum við einfaldlega þrýsta á þetta,“ segir Dagur.

Hann segist vilja að ríki og borg nái samstöðu um að þessar íbúðir fari til uppbyggingar með þarfir ungs fólks í huga. „Það er sá hópur sem stendur höllustum fæti á húsnæðismarkaði. Annars vegar eru þarna nokkrar lóðir sem myndu henta mjög vel til þess að byggja stúdentaíbúðir en ég sé líka fyrir mér að það væri áhugavert að þróa þarna litlar og meðalstórar íbúðir sem væru hugsaðar fyrir kaupendamarkaðinn,“ segir Dagur. Ríki og borg myndu í sameiningu finna leiðir til að tryggja að sú uppbygging færi fram án hagnaðarsjónarmiða, eða því sem næst.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
Í bréfi dags kemur fram að viðræður við fyrri ríkisstjórn hafi leitt til þess að borgin keypti lóð við Elliðaárvog sem var i eigu Sementsverksmiðjunnar og lóð Kennaraháskólans við Bólstaðarhlíð þar sem verður byggt upp fyrir stúdenta og eldri borgara. Viðræður um aðra mikilvæga reiti hafi ekki skilað árangri.

Dagur segir við Fréttablaðið að því hafi verið borið við að ríkinu sé óheimilt að heimila uppbyggingu á þessum lóðum nema hámarksverð fáist fyrir. „Þá þarf hugsanlega lagabreytingu eða eitthvað en þá er bara að gera það. Borgin er að láta land undir uppbyggingu sem er ekki í hagnaðarskyni án þess að fá þar hámarksendurgjald fyrir,“ segir Dagur og vísar þar í lóðaúthlutanir vegna stúdentaíbúða og vegna íbúða sem borgin hyggst reisa í samvinnu við verkalýðshreyfinguna.

„Mér líst mjög vel á þetta. Þetta verður aldrei afgerandi en samt eitt púsluspilið í því sem við erum að vinna með í húsnæðismálunum,“ segir Þorsteinn Víglundsson, félags- og húsnæðismálaráðherra. „Ég reikna með að þetta verði í þeim aðgerðum sem við munum leggja til við aðgerðahóp ríkisstjórnarinnar um húsnæðismál,“ segir Þorsteinn en nefndin mun móta tíu tillögur til lausnar á húsnæðisvandanum. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×