Innlent

Vill kanna samvinnu við Ísland

Forsætisráðherra Tyrklands, Recep Tayyip Erdogan, hefur óskað eftir fundi með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, til að ræða mögulega samvinnu við Íslendinga um nýtingu jarðhita í Tyrklandi.

Erdogan óskaði eftir þessu að lokinni setningarathöfn ráðstefnu Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, um framfarir þjóða sem haldin er í Tyrklandi.



Erdogan vísaði til góðs árangurs Íslendinga í nýtingu jarðhita og reynslu af svona verkefnum um allan heim. Tyrkland býr yfir miklum auðlindum á þessu sviði sem eru lítið nýttar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×