Innlent

Vill herða refsingar við áfengis- og vímuefnaakstri

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Elsa Lára Arnardóttir, þingkona Framsóknarflokks, er þreytt á biðinni.
Elsa Lára Arnardóttir, þingkona Framsóknarflokks, er þreytt á biðinni. Vísir/Pjetur
Þingkona Framsóknarflokksins segist þreytt á að bíða eftir að þingsályktunartillögu um hertar refsingar vegna ölvunar- og vímuefnaaksturs verði fylgt eftir af innanríkisráðherra. 



Elsa Lára Arnardóttir, þingkona Framsóknarflokks, er málshefjandi í sérstakri umræðu um málið á þingi í dag. Þar mun hún spyrja Ólöfu Nordal innanríkisráðherra að því hver staðan sé á endurskoðun umferðarlaga og þá sérstaklega með tilliti til hertari viðurlaga við ölvunar- og vímuefnaakstri.

„Ég vil að við aukum forvarnir og ég vil að við reynum að herða refsingar með það að markmiði að reyna minka tíðni þeirra atvika að fólk setjist ölvað undir stýri,“ segir hún.



Ólöf Nordal innanríkisráðherra.
Með þessu vill hún minnka tíðni hörmulegra slysa sem geta orðið vegna aksturs undir áhrifum.

„Og þá er ég að hugsa bæði um þann sem veldur slysinu og verður fyrir því af því að þetta hefur gríðarleg áhrif á alla aðila og fjölskyldur þeirra,“ segir hún.

Snýst ekki bara um sektirnar

Elsa Lára vill bæði hækka sektir verulega og minnka viðmiðunarmörk áfengis í blóði, auk fleiri þátta. 

„Í rauninni legg ég þetta í hendurnar á innanríkisráðherra að skoða málið betur og ég er að tala um hækkun sekta, aukið fjármagn í forvarnarsjóði, finna ný úrræði, að það verði skoðað til dæmis áfengislásar eins og er notað á Norðurlöndunum, ef fólk er tekið ítrekað undir áhrifum og ýmsa nýja hugsun,“ segir hún.

Elsa Lára segist orðin þreytt á biðinni eftir að þingsályktuninni, sem samþykkt var á síðasta ári, yrði fylgt eftir af ráðherra.

„Ég vil gjarnan fara að sjá eitthvað gerast í þessu. Vegna þess líka að það var svo mikill meirihluti í þinginu sem greiddi atkvæði með tillögunni,“ segir hún og bætir við: „Manni þætti afar vænt um það að sjá árangur af málinu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×