Innlent

Vill hækka tóbakskaupaaldur svo hægt sé að fækka nýliðun

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
"Þeir sem byrja að reykja eru oftast ungmenni sem eru ekki að taka að margra mati upplýsta ákvörðun,“ segir Siv.
"Þeir sem byrja að reykja eru oftast ungmenni sem eru ekki að taka að margra mati upplýsta ákvörðun,“ segir Siv. vísir/ernir
Siv Friðleifsdóttir, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, segir að hækka ætti tóbaksaldurinn. Líta ætti til annarra þjóða sem hækkað hafa tóbakskaupaaldur í 21 ár því með því sé hægt að hindra nýliðun reykingafólks.

„Það eru mjög fáir sem byrja að reykja, sem eru eins og maður segir innan gæsalappa, fullorðnir. Þeir sem byrja að reykja eru oftast ungmenni sem eru ekki að taka að margra mati upplýsta ákvörðun sem er grundvöllur á einhverri þekkingu og skynsemi,“ sagði Siv í þættinum Reykjavík síðdegis.

Umræðuefni þáttarins var fyrirhuguð lagasetning á Hawaii þar sem bannað verður að selja fólki undir 21 árs tóbak. Siv segir það skref í rétta átt, New York sé til að mynda á meðal þeirra sem tekið hafa upp þetta sama fyrirkomulag. 

„Það er verið að skoða þessi mál mjög víða um heim þar sem verið er að setja fram strangari reglur. Ekki bara í tóbaksvörnum heldur líka í áfengisvörnum. Það er svolítið svona nútíminn. Það er gamaldags að vera svona værukær gagnvart svona málaflokkum,“ sagði hún. 

Siv hefur í gegnum tíðina verið ötull talsmaður þess að koma þurfi í veg fyrir reykingar hér á landi. Lagði hún fram frumvarp á Alþingi þess efnis að reykingar yrðu bannaðar á veitinga- og skemmtistöðum, sem varð að lögum 1. júní 2007. Þá lagði hún einnig til árið 2011 að tóbak yrði lyfseðilsskylt. Náði það þó ekki fram að ganga. Þá hefur hún áður lagt til að tóbakskaupaaldur verði hækkaður. 

Viðtalið við Siv má heyra í heild í spilaranum hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

LÍ styður reykingafrumvarp

Stjórn Læknafélags Íslands styður eindregið það frumvarp sem Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur ásamt öðrum þingmönnum lagt fram um breytingar á lögum um tóbaksvarnir.

Frumvarp um reykingabann

Siv Friðleifsdóttir og þrír aðrir þingmenn lögðu í gær fram frumvarp á Alþingi um að reykingar yrðu alfarið bannaðar á veitinga- og skemmtistöðum, sem og við aðrar menningar- og félagssamkomur.

Þingmenn leggja til að sala tóbaks verði bönnuð

Bannað verður að selja tóbak, annarsstaðar en í apótekum, verði þingsályktunartillaga sem liggur fyrir Alþingi samþykkt. Það er Siv Friðleifsdóttir, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, sem er fyrsti flutningsmaður tillögunnar.

Lagt til að Norðurlöndin verði tóbakslaus árið 2040

„Þessar tillögur eru mjög framsýnar og í raun átti ég ekki von á því að nefndin gengi svona langt," segir Siv Friðleifsdóttir þingmaður og formaður velferðarnefndar Norðurlandaráðs. Þing ráðsins stendur nú yfir í Helsinki og í dag verður fjallað um víðtækar tillögur nefndarinnar í lýðheilsustefnu í áfengis- og fíkniefnamálum. Meðal þess sem nefndin leggur til er að Norðurlöndin verði tóbakslaus árið 2040, áfengisauglýsingar sem beinast sérstaklega að ungu fólki verði bannaðar og settir verði áfengislásar í bíla sem komi í veg fyrir það að bílstjórar undir áhrifum áfengis geti ekið af stað.

Tímaspursmál hvenær bannið tekur gildi

Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segist sannfærð um að almennt bann við sölu tóbaks, á öllum sölustöðum nema apótekum, verði að veruleika. Það sé aðeins tímaspursmál hvenær það taki gildi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×