Vill gera víkingamynd á Íslandi 30. ágúst 2004 00:01
Kanadískur kvikmyndagerðarmaður af íslenskum ættum ætlar að gera kvikmynd byggða á hugmyndum Íslendinga um víkinga. Hann er staddur hér á landi til að safna hugmyndum. Íslenska sjónvarps- og kvikmyndaakademían varar fólk við samstarfi við manninn. Leif Bristow er kanadískur kvikmyndagerðarmaður af íslenskum ættum. Langafi hans og amma voru á meðal fyrstu Íslendinganna sem fóru vestur um haf og settust að í Gimli. Bristow elur með sér draum um að búa til stórmynd byggða sögum um íslensku víkingana, og segir jarðveginn fyrir slíkar myndir frjóar í kjölfar mynda um Hringadróttinssögu, Tróju og Gladíator. Leif Bristow, segir að sér hafi fundist tími til kominn að gera víkingamynd, það sé langt síðan góð víkingamynd hafi verið gerð, ekki síðan Tony Curtis og Kurt Douglas léku í slíkri fyrir 40 árum. Hann hefur sett af stað smásagnakeppni fyrir Íslendinga. Sögurnar eiga að vera 1000 til 8000 orð og vera innblásnar af hugmyndum um víkingatímann. Þær bestu verða síðan hugsanlega með einum eða öðrum hætti nýttar við handritsgerðina, og það eru peningaverðlaun í boði. Fyrstu verðlaun eru 1000 dalir. Þess má hins vegar geta að á heimasíðu íslensku sjónvarps og kvikmyndaakademíunnar er fólk varað við samstarfi við fyrirtækið og því bent á að leita álits lögfræðings á sviði höfundarréttar áður en sagan er send inn. Leif reiknar með að tökur hefjist næsta sumar og hann stefnir að því að taka myndina upp hér á landi.Leif segir að þetta verði samstarfsverkefni Kanada, Bretlands og Íslands. Leif hefur fengið heimsþekkta leikara á borð við Whoopi Goldberg og Christopher Plummer til samstarfs við sig í fyrri myndum sínum og reiknar með að einhverjir frægir leikarar prýði víkingamyndina. Hann segir það nauðsynlegt, myndin muni kosta um 25-30 milljónir dala og fjalli á sögulegan hátt um víkingana.
Fréttir Innlent Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent „Farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama“ Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent Hæsta einstaka tjónið vegna netglæpa 114 milljónir króna Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Fleiri fréttir Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk Hæsta einstaka tjónið vegna netglæpa 114 milljónir króna No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð „Farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama“ Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Sjá meira