Viðskipti erlent

Vill gera allt til að Grikkland verði áfram hluti af evrusvæðinu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Fjármálaráðherra Frakklands segir það of áhættusamt ef Grikkir yfirgefa evrusamstarfið.
Fjármálaráðherra Frakklands segir það of áhættusamt ef Grikkir yfirgefa evrusamstarfið. vísir/epa
Manuel Valls, forsætisráðherra Frakklands, vill gera allt sem hægt er til þess að Grikkland verði áfram hluti af evrusvæðinu. Hann segir það of áhættusamt ef Grikkir yfirgefa evrusamstarfið.

Fjármálaráðherrar evruríkjanna funda í dag vegna ástandsins í Grikklandi og í kvöld munu leiðtogar evruríkjanna funda með Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands.

Eins og kunnugt er hafnaði gríska þjóðin samningstilboði lánadrottna ríkisins. Hefur sú niðurstaða skapað mikið óvissuástand um hvað tekur við næst en ráðherrar evruríkjanna hafa þrýst á grísku ríkisstjórnina um að leggja fram ný tilboð í dag.

Fastlega er búist við því Tsipras leggi til að 30% af skuldum ríkisins verði afskrifaðar en Þýskaland hefur varað við því að skuldir verði afskrifaðar án nokkurra skilyrða.

Jean-Clauda Juncker, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hefur dregið nokkuð úr væntingum um að samkomulag náist á fundinum í kvöld eða á allra næstu dögum. Hann tók til máls á Evrópuþinginu í morgun og sagði að yrði fundin lausn á einni nóttu.

„Það sem við ætlum að gera í dag er að tala saman og koma reglu aftur á,“ sagði Juncker.


Tengdar fréttir

Grikkir leggja til 30 prósenta skuldaniðurfellingu í dag

Búist er við því að Grikkir leggi fram nýja áætlun á neyðarfundi leiðtoga evruþjóðanna í dag. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segist tilbúinn að veita Grikkjum hjálparhönd. Fjármálaráðherra Grikkja sagði óvænt af sér í gær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×