Fótbolti

Vill fá sæðið úr Ronaldo og Zlatan | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þessi þjálfari hugsar talsvert lengra út fyrir boxið en flestir.
Þessi þjálfari hugsar talsvert lengra út fyrir boxið en flestir.
Norskur neðrideildarþjálfari fékk hugmynd að því hvernig hægt væri að búa til besta lið heims.

Hugmyndin er frumleg en ósmekkleg. Hann Ole Vidar Toftesund þjálfar lið Nordstranda sem getur ekki neitt. Hann er búinn að fá nóg.

Norðmaðurinn bjó því til myndband sem hefur farið sem eldur í sinu um netheima.

Þar biður hann hreinlega um sæðið úr mönnum á borð við Cristiano Ronaldo, Zlatan Ibrahimovic og Paul Gascoigne.

Svo hefur hann í hyggju að gera kærustur leikmanna sinna óléttar með sæði frægu knattspyrnukappanna. Hvort hann hefur yfir höfuð rætt þessa hugmynd við konurnar fylgir ekki fréttinni.

Myndbandið fræga má sjá hér að neðan eða með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×