Innlent

Vill ekki að fólk hagi sér eins og það „eigi“ stuðning

Samúel Karl Ólason skrifar
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir stöðuna fyrir kosningar vera flókna. Nýir flokkar mælist nú um fjörutíu prósenta fylgi og fylgið sé mjög dreift. Hann hefur á tilfinningunni sé að staðan hér sé ekki ósvipuð og sé að gerast víða annars staðar.

Bjarni ræddi stöðuna á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Hægt er að hlusta á viðtalið hér að ofan.

„Við erum að minnsta kosti ekki með þennan þriðjung atkvæða sem að Sjálfstæðisflokkurinn var með á landsvísu, þó að staða Sjálfstæðisflokksins á sveitarstjórnarstiginu sé gríðarlega sterk. Það er einungis á höfuðborgarsvæðinu sem að Sjálfstæðisflokkurinn hefur gefið aðeins eftir, en annars staðar hefur staða Sjálfstæðisflokksins verið mjög öflug um allt land,“ segir Bjarni.

Hann segist vera þeirrar skoðunar að Sjálfstæðisflokkurinn eigi samhljóm með þjóðinni sem að ætti að skila flokknum meira fylgi en hann mælist með í dag.

Þá hefur Bjarni ekki áhyggjur af framgangi Viðreisnar.

„Menn verða að gæta að því að haga sér ekki eins og þeir eigi eitthvað. Eigi ekki einhvern stuðning eða tilkall til einhverra atkvæða. Til þess að fólk einhvers staðar á landinu komi alltaf og styðji okkur. Þetta verður alltaf þessi barátta um að sannfæra fólk um að fylgja okkar stefnu. Nýir flokkar geta orðið til, þeir hafa áður orðið til og þeir hafa yfirleitt ekki verið langlífir. Það eru bara tveir flokkar sem að virkilega hafa lifað lengi og það eru Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur. Við höfum lifað allar þessar sveiflur í bráðum hundrað ár.“

Hann segist ekki sjá að Viðreisn hafi haft mikil áhrif á fylgi Sjálfstæðisflokksins. Vel gæti verið að Evrópusinnað fólk sæi tækifæri í Viðreisn, en setur spurningarmerki við að Evrópusinnaður flokkur skyldi vera stofnaður í dag þegar ESB „er á jafn miklum krossgötum og það er“.


Tengdar fréttir

Skiptar skoðanir um íhaldssemi flokksins

Ritari Sjálfstæðisflokksins telur ekki fót fyrir gagnrýni nokkurra stjórnarkvenna í Landssambandi sjálfstæðiskvenna sem sögðu sig úr flokknum vegna íhaldssemi hans í jafnréttismálum. Tvær þingkonur segja eitthvað til í gagnrýninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×