Vill ekkert segja fyrr en að lestri loknum

Fréttablaðið Innlent 09. september 2010 04:00
Jón Bjarnason hefur ekki kynnt sér skýrsluna í heild né vinnugögn nefndarinnar. Tjáir sig því ekki að svo stöddu.fréttablaðið/anton
Jón Bjarnason hefur ekki kynnt sér skýrsluna í heild né vinnugögn nefndarinnar. Tjáir sig því ekki að svo stöddu.fréttablaðið/anton
Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra vill ekkert tjá sig um einstök efnisatriði nýútkominnar skýrslu starfshóps um endurskoðun fiskveiðistjórnunarkerfisins. Í viðtali Fréttablaðsins við ráðherra kom ekki fram hvenær hann telur ástæðu til að tjá sig þar sem hann hefur ekki kynnt sér skýrsluna til hlítar.

Jón skipaði starfshópinn í júlí 2009 til að endurskoða fiskveiðistjórnunarkerfið, með vísan til stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnar Samfylkingar og VG um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða. Verkefnið var að skilgreina helstu álitaefni sem fyrir hendi eru og setja fram valkosti sem líklegir væru til að sem víðtækust sátt náist um fiskveiðistjórnunina meðal þjóðarinnar.

Jón segist ánægður með að hópurinn hafi skilað af sér. Hins vegar hafi hann ekki náð að fara í gegnum alla þætti skýrslunnar. „Hún verður í framhaldinu tekin til skoðunar og framhaldsvinnu í ráðuneytinu," segir ráðherra.
Starfshópurinn mælir eindregið með að farin verði svokölluð samningaleið. Er það túlkun fulltrúa innan nefndarinnar og hagsmunaaðila að það útiloki fyrningarleiðina en í stjórnarsáttmála Samfylkingarinnar og VG frá í maí 2009 stendur: „Lög um stjórn fiskveiða verði endurskoðuð í heild með það að markmiði að skapa sátt meðal þjóðarinnar um eignarhald og nýtingu auðlinda sjávar og leggja grunn að innköllun og endurráðstöfun aflaheimilda á tuttugu ára tímabili í samræmi við stefnu beggja flokka."

Fréttablaðinu lék forvitni á að vita hvort Jón túlki niðurstöðu starfshópsins með sama hætti. Eins hvort hann sjái samningaleiðina sem kost. Þessum spurningum svaraði ráðherra með eftirfarandi hætti: „Ég mun láta fara yfir alla kosti og segi ekki meira að svo stöddu."

svavar@frettabladid.is

Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 13. feb. 2012 06:30

Minnihluti fylgjandi Vaðlaheiðargöngum

Um 28 prósent landsmanna vilja að ráðist verði í gerð Vaðlaheiðarganga í ríkistryggðri ein...  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 06:00

Rammaáætlun felur ekki í sér endanlega úthlutun

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segir ekki rétt að halda því fram að í rammaáætlun...  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 06:56

Loðnugangan komin vestur fyrir Höfn í Hornafirði

Aðal loðnugangan er nú komin vestur fyrir Höfn í Hornafirði og nálgast Hrollauglseyjar. Þa...  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 06:00

Tæplega 44 prósent vilja falla frá ákæru

Þjóðin er klofin í tvær jafnar fylkingar í afstöðu sinni til þess hvort Alþingi eigi að dr...  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 05:00

Minna ofbeldi í miðborginni

Alls urðu 1.578 fyrirtæki gjaldþrota á árinu 2011 og hafa aldrei verið fleiri á einu ári. ...  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 05:00

Taldi sig eiga óuppgerð mál

Karlmaðurinn sem varð fyrir hrottalegri árás á heimili sínu á Þórshöfn aðfaranótt sunnudag...  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 04:00

Tilgangurinn var ekki að valda skaða

Karl á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið fyrir sprengjunni sem sprakk á Hverfisgötu,...  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 04:00

Vilja skýr svör um bótaskyldu

Þrír bændur telja að Ísafjarðarbær beri ábyrgð á því tjóni sem þeir urðu fyrir af völdum d...  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 03:13

Sammála um annað en ESB

Stofnfundur nýrrar breiðfylkingar um framboð til næstu alþingiskosninga var haldinn í gær....  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 03:13

Vill alhliða lög gegn mismunun

Ísland þarf alhliða lög gegn mismunun og óháða jafnréttisnefnd til þess að hrinda ákvæðum ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 20:15

Fyrri stofnfundur Breiðfylkingarinnar haldinn í dag

Í dag var haldinn stofnfundur Breiðfylkingarinnar sem fulltrúar Hreyfingarinnar, Frjálslyn...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 19:45

Rúmur meirihluti vill Ólaf Ragnar áfram

Rúmur meirihluti þjóðarinnar vill að Ólafur Ragnar Grímsson gefi aftur kost á sér í forset...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 18:46

Flestir vildu að Blár Ópal myndi vinna: "Leiðinlegt fyrir sigurlagið“

"Það er skrýtið að þetta hafi ekki verið skýrara,“ segir Ingólfur Þórarinsson, eða I...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 17:26

Hundur fastur í neti - tækjabíll frá slökkviliðinu kallaður til

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um hund sem væri fastur í netadræsum við Ægisg...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 13:51

Tæplega 80 þúsund atkvæði greidd í Eurovison

Alls voru greidd 79 þúsund atkvæði í Eurovision keppninni sem var sýnd á RÚV í gærkvöldi. ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:53

Beit lögregluþjón

Karlmaður beit lögregluþjón til blóðs í morgun. Maðurinn var stöðaður á Laugaveginum rétt ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:45

Huglausa ljónið féll niður hlera í miðri sýningu

"Samkvæmt öllum myndum og rannsóknum ætti hann að sleppa ótrúlega vel,“ segir leikar...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:19

Opið í Böggvistaðafjalli og í Oddsskarði

Lokað er í Bláfjöllum í dag vegna veðurs en þar er bæði hvasst og Blautt. Sömu sögu er að ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 09:32

Settist upp í lögreglubíl og braut bílrúðu

Ölvaður og æstur maður var handtekinn við krá í Hafnarfirði eftir að hann braut rúðu í lög...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Vill ekkert segja fyrr en að lestri loknum